Davíð Bergmann segist vera áhugamaður um samfélagsmál og stuðningsmaður Miðflokksins og hann birti harðorða grein þar sem hann lýsir yfir óánægju með hvernig íslensk stjórnvöld hafi tekið á málefnum ólöglegra hælisleitenda og erlendra glæpahópa.
Davíð segir ljóst að kerfið sé að bregðast og fullyrðir að ef skoðanir hans teljist til hægri öfga, þá sé hann stoltur af því.
Harðorð gagnrýni á hælisleitendamál
Í greininni segir höfundur að það séu á þriðja hundrað ólöglegra hælisleitenda hér á landi sem neiti að yfirgefa landið þrátt fyrir synjun á landvistarleyfi.
Davíð gagnrýnir lögfræðistofur fyrir að nýta sér þessa stöðu og segir þær blóðmjólka skattgreiðendur á meðan öldruðum sé haldið á biðlistum eftir nauðsynlegri þjónustu.
Uppræta skipulagða glæpastarfsemi
Einnig kallar hann eftir harðari aðgerðum gegn erlendum glæpahópum og telur íslensk stjórnvöld hafa sýnt getuleysi í baráttunni við þá.
Davíð leggur til að brottvísun verði sjálfgefin ef einstaklingur kemur hingað í þeim tilgangi að fremja glæpi og að slíkt fólk fái ævilangan bann við landvistarleyfi.
Landamæragæslu þurfi einnig að efla.
Hafna því að hægriöfgamenn séu mesta ógnin
Greinin svarar einnig nýlegri skýrslu ríkislögreglustjóra þar sem fram kemur að hægriöfgamenn séu talin helsta hryðjuverkahættan á Íslandi.
Davíð hafnar því alfarið og segir slíkt vera ryki slengt í augu almennings.
Davíð gagnrýnir einnig hvernig mál svokallaðra „hægrisinnaðra hryðjuverkadrengja“ hafi verið unnið og dregur í efa trúverðugleika ákæruvaldsins í því samhengi.
Kallar eftir nýrri forgangsröðun
Í greinarlok krefst höfundur þess að forgangsröðun í samfélaginu verði endurskoðuð og að tekið verði harðar á málefnum ólöglegra innflytjenda og glæpahópa.
Davíð leggur til að fjármagn fari fremur í að verja íslenskt samfélag innanlands heldur en í stuðning við stríð erlendis og kallar eftir því að íslenskukennsla verði efld fyrir þá sem hafa löglega dvalarleyfi.
„Nú þarf að fara í tiltekt og út með ruslið.“