Eiginkona Snorra gagnrýnir Vísi fyrir notkun á mynd af tveggja ára syni þeirra – Segir drenginn notaðan sem smellibeitu í pólitískri umræðu

Nadine Guðrún Yaghi, eiginkona Snorra Más­sonar varaformanns Miðflokksins, gagnrýnir harðlega ákvörðun Vísis um að nota mynd af tveggja ára gömlum syni þeirra í pólitískri frétt á vefnum í morgun.

Í færslu sem hún birti á Facebook segir Nadine að stóra myndin af drengnum hafi verið birt undir fyrirsögninni „Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu“.

Auglýsing

Hún segistýmsu vön sem eiginkona stjórnmálamanns, en að þetta fari langt út fyrir þau mörk.

Hún bendir á að umræðan um stjórnmálamenn geti verið hörð og gjarnan tilefni fyrir deilur, sem hún hafi almennt talið eðlilegan hluta starfsins.

„En ég er líka móðir,“ bætir hún við, „og er ekki undir nokkrum kringumstæðum tilbúin að sitja undir því að mynd af syni mínum sé teflt fram sem hluta af mjög hvassri pólitískri gagnrýni.“

Segir myndina notaða í allt öðru samhengi

Nadine segir að með notkun myndarinnar hafi drengnum verið ýtt út í forarsvað sem þátttakanda í pólitískum átökum sem hann hvorki skilur né tengist.

Hún lýsir því sem smellubeitu og segir að þetta marki dapran áfanga í íslenskri fjölmiðlaumræðu.

Að hennar mati hafa það verið ákveðin lífsgæði í litlu samfélagi Íslands að opinberar persónur þurfi ekki að fela börn sín frá opinberum vettvangi eða samfélagsmiðlum af ótta við að myndir af þeim verði notaðar gegn þeim sjálfum.

„Það eru ömurlegar fréttir ef það er liðin tíð,“ segir hún.

Óskaði eftir breytingu en fékk synjun

Nadine segir að hún hafi óskað eftir því við Vísi að önnur mynd yrði notuð í fréttinni.

Samkvæmt henni hafnaði ritstjórn þess, með þeim rökum að faðirinn, Snorri Másson, hafi sjálfur birt myndina á samfélagsmiðlum áður.

Hún telur hins vegar að það hafi verið í gjörólíku samhengi og að miðillinn hafi ruglast í forgangsröðuninni.

„Að minnsta kosti man ég ekki til þess að börn á leikskólaaldri hafi hingað til þurft að þola myndbirtingar undir hápólitískum fréttum um foreldra þeirra,“ skrifar hún, og segir að með þessu hafi barn þeirra í raun verið gert að hluta af fréttinni sjálfri.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing