Ein gegn kerfinu öllu – Margrét Friðriksdóttir segir dóma byggða á skoðunum en ekki gögnum og lýsir ótrúlegu atviki í dómssal

Margrét Friðriksdóttir var gestur Spjallsins með Frosta Logasyni þar sem hún fór yfir ákæru sem hún sætir fyrir ærumeiðingar og aðdróttanir í garð dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Málið hefur vakið mikla athygli og Margrét segir réttarhöldin hafa verið óvenjuleg.

Telur dóma byggða á skoðunum fremur en gögnum

Í viðtalinu lýsir Margrét því að hún telji sig hafa orðið fyrir kerfisbundnu misrétti þar sem persónulegar skoðanir embættismanna ráði för fremur en gögn málsins. Hún segir dómarann ekki dæma á grundvelli vitna og gagna og að saksóknari og kærandi séu í raun í sama liði.

Auglýsing

Að hennar mati sé þetta skýrt dæmi um ófaglega málsmeðferð sem grafi undan trausti á réttarkerfinu.

Arnar Þór Jónsson sem þá var verjandi Margrétar, staðfesti frásögn Margrétar í viðtali nýlega þar sem hann lýsir því að eftir að dómur féll í málinu hafi kærandi og saksóknari fallist í faðma og slíkt hafi hann aldrei séð fyrr né síðar á sínum ferli.

Segir áhrifin á líf sitt vera mikil

Margrét segir málin hafa staðið yfir frá árinu 2018 og haft víðtæk áhrif á líf sitt. Hún segist hafa misst atvinnutækifæri og neyðst til að treysta alfarið á sjálfa sig. Hún bendir á að slík mál hafi ítrekað leitt til þess að einstaklingar missi lífsviðurværi sitt og stöðu í samfélaginu.

Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun og falskar klippingar

Í viðtalinu rifjar Margrét upp eldri fjölmiðlaumfjöllun um hana, þar sem hún segir orð sín hafa verið tekin úr samhengi. Hún nefnir sérstaklega umfjöllun um ummæli hennar um skipulagða glæpastarfsemi erlendis og segir orð sín hafa verið klippt til í viðtölum til þess að gefa ranga mynd af afstöðu hennar.

Hún segir slíka framsetningu hafa leitt til þess að hún, börn hennar og fjölskylda hafi orðið fyrir aðkasti.

Segist hafa talað fyrir varfærni í málefnum hælisleitenda

Margrét segir að afstaða hennar í umræðu um hælisleitendamál hafi alltaf snúist um varfærni og ábyrgð. Hún hafi ekki verið á móti móttöku fólks heldur talið mikilvægt að samfélagið ráði við þá stefnu sem ákveðin er. Hún bendir á að margt af því sem hún sagði fyrir mörgum árum og þóttu sjokkerandi sé í dag orðið hluti af almennri umræðu.

Að lokum segir Margrét að það vanti upp á að stjórnvöld og aðrir ábyrgir aðilar horfist í augu við stöðuna og taki ábyrgð á því sem miður hefur farið, en hún er ekki bjartsýn á að svo verði.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing