Einelti meðal barna í 4. og 5. bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent

Einelti meðal barna í fjórða og fimmta bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent. Árið 2023 var hlutfallið 22 prósent. Hækkunin er ellefu prósentustig á þremur árum, þótt heildarmælingar á farsæld barna í landshlutanum sýni framfarir.

Tölurnar koma úr Íslensku æskulýðsrannsókninni, sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið. Grunnskólakönnunin er lögð fyrir nemendur um land allt á hverju vori. Farsældarráð Suðurnesja tók saman niðurstöður fyrir landshlutann og bar saman mælingar frá 2023 og 2026.

Auglýsing

Víkurfréttir sögðu fyrst frá niðurstöðunum, sem Farsældarráð Suðurnesja kynnti á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Ráðið tók saman 95 samanburðarhæfar mælingar úr Íslensku æskulýðsrannsókninni.

Minni lestrargleði og meiri þreyta

Fleiri tölur vekja athygli hjá börnum í fjórða og fimmta bekk. Hlutfall þeirra sem segjast hafa gaman af að lesa í skólanum lækkaði úr 63 í 53 prósent. Þeim sem segjast þreytt í skólanum fjölgaði úr 24 í 30 prósent.

Heildarmyndin batnar

Af 95 mælingum sýna 69 betri stöðu árið 2026 en árið 2023. Heildarvísir farsældar hækkaði úr 76,1 stigi í 77,7 af 100 mögulegum. Hjá nemendum í sjötta til tíunda bekk lækkaði jafnframt hlutfall þeirra sem sögðust hafa verið beðin um nektarmyndir úr 38 í 22 prósent.

Mikill munur mælist þó eftir fjárhag heimila. Farsældarvísir barna á heimilum með góðan fjárhag er 80,7 stig, en 65,8 stig hjá börnum á heimilum þar sem fjárhagurinn er miðlungs eða slæmur. Þar munar tæplega 15 stigum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing