Wanderlei Silva, goðsögn úr MMA-heiminum sem sneri aftur í bardagaíþróttir eftir sjö ára hlé tilað keppa í hnefaleikum, var ekki aðeins dæmdur úr leik í sinni fyrstu hnefaleikakeppni, heldur var hann einnig rotaður í ringnum eftir bardagann af syni andstæðings síns.
Atvikið hefur vakið mikla reiði og umræðu innan bardagasamfélagsins.
Silva, sem oft var kallaður „The Axe Murderer,“ eða Axarmorðinginn, á ferli sínum í Pride og UFC, mætti fyrrverandi heimsmeistaranum Acelino „Popó“ Freitas í sýningarbardaga.
Silva tapaði bardaganum með því að vera dæmdur úr leik fyrir að skalla andstæðing sinn ítrekað, og eftir ákvörðunina brutust út átök í hringnum sem enduðu með því að Silva var rotaður á dramatískan hátt.
Nú hefur komið í ljós að sá sem sló Silva niður var ekki Acelino Freitas sjálfur, heldur sonur hans, Rafael Freitas.
Freitas: „Þeir réðust á mig fyrst“
Acelino Freitas steig fram á samfélagsmiðlum og lýsti sinni hlið málsins, þar sem hann segir liðsmenn Silva hafa hafið átökin:
„Þegar bardaganum lauk og Wanderlei var dæmdur úr leik fyrir að skalla mig þrisvar, réðst þjálfari hans á mig og kýldi mig,“ sagði Freitas í myndbandi sem hann birti.
Hann hélt áfram og sagði að fyrrum UFC meistari í þungavigt, Fabricio Werdum, hefði komið inn á sviðið ásamt syni Silva og valdið usla:
„Wanderlei, bardaginn var milli okkar tveggja. Ef þú vildir skalla mig, þá er það í lagi en lið þitt hagaði sér skammarlega. Werdum kom inn með son þinn og réðist á alla.“
Hengdur í slagsmálunum
Freitas segir einnig að annar maður hafi reynt að taka hann í hengingartak og næstum kæft hann, og að hann sjálfur hafi verið sá sem varð fyrir raunverulegu ofbeldi:
„Við vildum bjóða upp á frábæra skemmtun en enduðum með því að ég var laminn af þjálfara hans. Werdum, þú ættir að skammast þín.“