Elon Musk tekur undir með Michael Malice sem fagnar því að Íslendingar hafi hafnað viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, segir niðurstöðuna vekja jákvæð viðbrögð erlendis og vera túlkaða sem áminningu til sambandsins.
„Bravo!“ skrifar athafnamaðurinn Elon Musk í svari við færslu Michaels Malice á samfélagsmiðlinum X um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi.
Malice hafði þar fagnað niðurstöðunni og lýst henni sem höfnun á áralöngum áróðri fyrir aðildarviðræðum.
„Þrátt fyrir áralangan linnulausan áróður hafa Íslendingar hafnað því að ræða inngöngu í ESB,“ skrifar Malice í íslenskri þýðingu.
Musk svarar með þessu eina orði og tekur þannig undir fögnuð Malice yfir niðurstöðunni.

Sigríður segir niðurstöðuna áminningu til ESB
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, fjallar einnig um erlend viðbrögð í nýrri færslu á Facebook. Hún telur niðurstöðuna víða túlkaða sem gagnrýni á miðstýringu innan Evrópusambandsins.
„Það er athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðisgreiðslunnar. Hvarvetna er litið á þetta sem verðskuldaða áminningu til ESB um að fólki hugnist ekki sú miðstýring sem sambandið hverfist um og á að aukast enn frekar en nú er.“
Að sögn Sigríðar einkennast þau viðbrögð sem hún hefur séð fyrst og fremst af hrósi í garð Íslendinga.
„Þá er Íslendingum hrósað af nánast öllum sem tjá sig um fréttirnar. Það gætir jafnvel öfundar af hálfu sumra sem tjá sig um fréttirnar og segjast sjá verulega eftir að hafa stutt aðild eigin lands að ESB.“
Hún telur gagnrýni á ákvörðun íslenskra kjósenda síður áberandi í þessum umræðum.
„Þeir eru fáir Evrópubúarnir sem átelja Íslendinga fyrir þessa niðurstöðu.“