Engin svör frá Ríkissaksóknara um meinta vitneskju um ólögmæta starfshætti sérstaks saksóknara

Ríkissaksóknari hefur enn ekki svarað fyrirspurnum Nútímans vegna umfjöllunar fjölmiðilsins um viðtal Frosta Logasonar við Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumann hjá embætti sérstaks saksóknara. Fyrri frétt Nútímans um málið var birt 18. desember síðastliðinn og voru þar raktar ásakanir Jóns Óttars um að ósamræmi væri á milli framburðar hans í yfirheyrslum árið 2012 og þeirra gagna sem síðar lágu fyrir í málinu.

Í kjölfar umfjöllunarinnar sendi Nútíminn spurningar á Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, þar sem óskað var skýringa á því hvort embættið hefði á sínum tíma fengið vitneskju um óeðlilegt eða ólögmætt samstarf sérstaks saksóknara við slitastjórnir og skiptastjóra í hinum svokölluðu hrunmálum. Þá var jafnframt spurt hvort fram hefðu komið upplýsingar um óhefðbundin vinnubrögð við gagnaöflun, símhleranir eða ákæruvinnu.

Auglýsing

Þrátt fyrir að spurningarnar hafi verið sendar ríkissaksóknara 18. desember og ítrekaðar 22. desember hafa svör ekki borist þegar þetta er ritað.

Ríkissaksóknari hafi verið upplýstur um ólögmæta starfshætti sérstaks saksóknara – en ekkert aðhafst

Fullyrðingar um ólögmætt samstarf

Í viðtali við Frosta Logason á Brotkast.is lýsti Jón Óttar því hvernig hann og samstarfsmaður hans, Guðmundur Haukur Gunnarsson, hefðu á sínum tíma greint ríkissaksóknara frá því að sérstakur saksóknari hefði ítrekað átt í náinu og óformlegu samstarfi við slitastjórnir banka og skiptastjóra. Að hans sögn hefðu upplýsingar frá aðilum með beina fjárhagslega hagsmuni í einstökum málum verið nýttar sem grundvöllur rannsóknaraðgerða — án þess að sjálfstæð rannsókn hefði farið fram innan embættisins.

Jón Óttar heldur því jafnframt fram að dómari hafi verið fenginn til að samþykkja símhleranir á grundvelli slíkra upplýsinga, meðal annars í máli tengdu Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, án þess að sjálfstæð lögreglurannsókn hefði farið fram áður.

Allt þetta má heyra á upptökum af yfirheyrslum Ríkissaksóknara frá árinu 2012, sem spilaðar voru í viðtalinu við Jón Óttar á Brotkast.is, en í skýrslum sem skrifaðar voru upp úr sömu yfirheyrslum má sjá að þessum frásögnum hefur verið sleppt út.

Því virðist sem háttsemin, sem talin var refsiverð þegar hún snéri að lögreglumönnunum Jóni Óttari og Guðmundi Hauki þegar þeir voru kærðir árið 2012, hafi gufað upp við rannsókn Ríkissaksóknara þegar í ljós kom að yfirmenn þeirra höfðu verið þátttakendur í umræddum brotum.

Spurningum sem enn hefur ekki verið svarað

Spurningar Nútímans til Sigríðar Friðjónsdóttur sneru meðal annars að því:

  • hvort þessi mynd hafi komið fram í rannsókn embættisins árið 2012.
  • hvort tilkynnt hafi verið um mögulegt ólögmætt samstarf embættis sérstaks saksóknara við einkaaðila.
  • og hvort fram hafi komið upplýsingar um óhefðbundna meðferð gagna, símhleranir og ákæruvinnu.

Engin svör hafa þó fengist við þessum spurningum, þrátt fyrir ítrekanir.

Nútíminn mun áfram fylgjast með málinu og upplýsa lesendur um framhaldið þegar og ef svör berast frá embætti ríkissaksóknara.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing