Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega viðbrögð Isavia vegna máls sem snýr að notkun kaffiskúrs leigubílstjóra við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Viðbrögð Isavia hlægileg
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins um viðbrögð Isavia við frétt þar sem fram kemur að hópur erlendra leigubílstjóra hafi frá árinu 2023 notað kaffiskúrinn til bænahalds, sem hafi í reynd útilokað aðra notkun skúrsins.
Guðmundur Daði Rúnarsson hjá Isavia segir að félagið leggi ekki stein í götu trúariðkunar, en að brugðist verði við með því að tryggja jafnan aðgang fyrir alla.
Þá segir hann einnig að Isavia hyggst leita til sérfræðinga í fjölmenningarsamfélögum til að fá ráðgjöf um viðbrögð.
Samkvæmt Morgunblaðinu lýsa íslenskir leigubílstjórar því að skúrinn hafi verið „hertekinn“ og að þeim hafi verið meinaður aðgangur eða notkun á sameiginlegum búnaði.
Anna Kristín Ásmundsdóttir, leigubílstjóri hjá A-stöðinni, segir meðal annars að 90% af eigum sínum og vinkonu hennar í skúrunum hafi horfið, þar á meðal eldhústæki og borðbúnaður.
Isavia, í gegnum Guðmund Daða Rúnarsson, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar, kveður félagið ekki gera athugasemdir við trúariðkun sem slíka, en leggur áherslu á að aðstaðan eigi að vera opin öllum.
Eru sérfræðingarnir vandamálið?
Sigmundur Davíð birti færslu á X þar sem hann gagnrýnir þessa ákvörðun og spyr kaldhæðnislega hverjir þessir „fjölmenningarsérfræðingar“ séu.
Hann veltir fyrir sér hvort slíkur aðili sé frekar hluti af vandanum en lausn hans og hvort námskeiðahald slíkra sérfræðinga kunni að hafa aukið á ruglið.
Sigmundur spáir því jafnframt að næstu skref verði annað hvort uppgjöf gagnvart þeim sem brjóti reglurnar, eða að öðrum leigubílstjórum verði boðið að nýta fjarlægari eða verri aðstöðu, jafnvel með uppsetningu útikamma.
Nei, hættu nú alveg!
Stjórnendur Isavia og ráðherrann láta ekki ná í sig dögum saman en svo er maður sendur út með skilaboð um að félagið ætli að leita til fjölmenningarsérfræðinga.
Hverjir skyldu nú þessir „menn sem eru sérfróðir í fjölmenningarsamfélaginu” vera?
Getur verið… pic.twitter.com/oA36fGi9tS
— Sigmundur Davíð (@sigmundurdavid) April 28, 2025