Nútíminn hefur fengið sent myndband sem tekið var upp í kennslustund við Háskóla Íslands. Þar má sjá og heyra umræðu sem átti sér stað í tengslum við verkefnavinnu nemenda í áfanga sem fjallar um fjölmiðla, menningu og gagnrýna greiningu á efni í opinberri umræðu.
Spurði hvort ætti ekki örugglega að „taka þessa menn af lífi“
Í myndbandinu heyrist kennarinn bregðast við þegar hann sér hvaða hlaðvarp nemendurnir eru að fara að fjalla um en það eru þremenningarnir Egill Einarsson, Steindir jr. og Auðunn Blöndal, sem eru með hlaðvarpið Blökastið.
Þá spyr hann: „Eruð þið ekki örugglega að fara að taka þá af lífi þessa menn?“
Umræðan snerist um greiningu nemendanna á hlaðvarpinu Blökastið, þar sem þeir höfðu meðal annars skoðað húmor, orðalag og umræðuefni þáttastjórnenda. Í verkefninu var fjallað um hvort barnalegur húmor og óformlegt orðalag dragi úr alvarleika umræðu um áfengi og fjárhættuspil. Umsögnin sem hlaðvarpið fékk var ekki mjög jákvæð en kennarinn segir í lokin að þarna hafi allt verið eðlilegt og engin ástæða til að hafa áhyggjur.
Umræða um „kalla kalla“ og „kalla orku“
Síðar í kennslustundinni þróaðist umræðan yfir í svokallaða „kalla-kalla“ menningu. Kennarinn notaði hugtakið og útskýrði það sem ákveðna „kalla orku“. Til að útskýra fyrir nemendum sínum hvað „kalla orka“ væri: „Kalla orka er svona, þú átt jeppa, Ferð að veiða, er það ekki? Talar illa um konur.“
Áfangi í gagnrýninni fjölmiðlagreiningu
Samkvæmt upplýsingum Nútímans er um að ræða áfanga innan hugvísinda- eða félagsvísindasviðs þar sem nemendur læra að greina fjölmiðlaefni, orðræðu og menningarleg fyrirbæri með gagnrýnum hætti. Kennarinn sem stýrir áfanganum, Arnar Eggert Thoroddsen, er aðjunkt við Háskóla Íslands og hefur umsjón með kennslu og verkefnavinnu í viðkomandi námskeiði.
Markmið áfangans er meðal annars að þjálfa nemendur í að greina orðræðu, valdatengsl og samfélagslegar hugmyndir sem birtast í fjölmiðlum og afþreyingarefni.
UPPFÆRSLA:
Háskólinn hefur lokað fyrir aðgang að myndbandinu en hér fyrir neðan er hægt að sjá brot úr umfjölluninni um Blökastið.