Evrópuþingið greiðir í dag atkvæði um stefnuu þar sem meðal annars er lagt til að Evrópusambandið leggi áherslu á „fulla viðurkenningu trans kvenna sem kvenna“ í jafnréttis- og verndarstefnu.
Pólitísk afstaða, ekki lagabreyting
Skýrslan er ekki lagafrumvarp heldur þingályktun sem lýsir pólitískri afstöðu þingsins. Slíkar ályktanir breyta ekki lögum og hafa ekki bindandi réttaráhrif einar og sér. Ef frumvarpið verður samþykkt myndi Evrópuþingið opinberlega styðja þá nálgun að trans konur skuli taldar til kvenna í allri stefnumótun sem snýr að jafnréttismálum. Slík afstaða getur haft áhrif á framtíðarstefnu sambandsins og hvaða mál framkvæmdastjórn Evrópusambandsins velur að leggja fram síðar, til dæmis í formi nýrra laga.
Skiptar skoðanir
Stuðningsmenn telja orðalagið mikilvægt skref til að tryggja jafnan aðgang að vernd og þjónustu fyrir trans einstaklinga. Gagnrýnendur segja hins vegar að slíkar yfirlýsingar geti haft áhrif á framtíðarskilgreiningar og stefnumótun um kynbundin réttindi kvenna.
Þetta mun ekki sjálfkrafa hafa áhrif inn í kvennaíþróttir þó því sé haldið fram af andstæðingum frumvarpsins að sú verði raunin ef frumvarpið nær fram að ganga.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun liggja fyrir síðar í dag.