Fjölmiðlar: Ofbeldismaðurinn sem verður fórnarlamb þegar honum er svarað

Trúverðugleiki fjölmiðla hefur líklega náð algjöru lágmarki á undanförnum dögum.

Ekki bara hafa háttsettir aðilar innan einnar virtustu fréttastofu heims, sjálfri BBC, þurft að segja af sér vegna falsfrétta af bandaríkjaforseta, Donald Trump, heldur hefur RÚV legið undir ásökunum um mikla og einhliða slagsíðu í sínum efnistökum og fréttaflutningi.

Auglýsing

Sýnið mér þolinmæði því þessi trúverðugleiki mun skipta máli seinna í þessum pistli.

Kjaftaskur að nafni Sverrir Helgason

Ég ætlaði mér aldrei að svara þessari umfjöllun á þessum vettvangi en stenst ekki mátið eftir ákveðna þróun í máli sem á sér nokkuð langa forsögu.

Undanfarið hefur ungur strigakjaftur að nafni Sverrir Helgason verið nokkuð mikið í sviðsljósi fjölmiðla vegna framgöngu sinnar á samfélagsmiðlum og í hlaðvarpi sem heitir Bjórkast.

Um hann var fjallað 27.október á MBL.is þar sem það þótti fréttnæmt að Sverrir neitaði ekki að vera rasisti, sem er líklega sanngjörn túlkun á því að hann, aðspurður, segir að það angri hann ekki vitund að vera kallaður því uppnefni.

Því er svo haldið fram að það angri fæsta í dag vegna gjaldfellingar orðsins.

Þessir menn gerðu Sverri ábyrgan fyrir hlutum sem hann sagði aldrei, því skyldu þeir ekki gerðir ábyrgir fyrir hlutum sem þeir raunverulega sögðu?“

Ég man þessi orð vel vegna þess að MBL skrifar orðrétt þau orðaskipti Sverris og Helga Hrafns, fyrrum þingmanns Pírata, sem ollu fjaðrafokinu, en þar stendur orðrétt:

„Ekki rasisti sumsé?“ ítrekaði Helgi og Sverrir svaraði:

„Það myndi ekki trufla mig þó ég væri kallaður það… Ekki neitt.“

Þeir sem trúa ekki umfjöllun MBL (og miðað við orðstír fjölmiðla í dag er það líklega skiljanlegt) geta smellt á þennan hlekk sem fer með þig beint á þann stað sem orðaskiptin eiga sér stað.

Fyrsta lygin

Frétt MBL.is var augljós smellubeita en hún var sannarlega ekki hrein lygi. Það sama er ekki hægt að segja um umfjöllun sem Vísir.is kom með daginn eftir, en í fyrirsögn þeirra stóð:

„Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér.“

Orðrétt skrifaði Sverrir í yfirlýsingu sinni á X:

„Ég var nú bara varamaður í stjórn, en þar sem ég vil fá að halda áfram að tjá mig og ögra eins og mig langar til án þess að það kasti rýrð á það góða starf sem á sér stað hjá ungum miðflokksmönnum þá segi ég stöðu minni þar lausri,“

Dæmi nú hver fyrir sig hvort þessi fyrirsögn standist nánari skoðun. Jafnvel með mestu heilaleikfimi er erfitt að komast að þeirri niðurstöðu að Sverrir hafi gengist við rasisma.

Ólíkt umfjöllun MBL er þarna um hreina og beina lygi að ræða og velur „fréttamaðurinn“, Magnús Jochum Pálsson, að setja það í fyrirsögn fréttarinnar.

Magnús Jochum Pálsson

Önnur lygin

Önnur lygin kom svo í sjálfu sjónvarpi allra landsmanna, RÚV, og það á besta tíma eða í Kastljósinu þann 3.nóvember. Fyrir áhugasama er hægt að smella á þennan hlekk til að horfa á þáttinn en búturinn sem ég birti með byrjar þegar nákvæmlega 9:06 eru liðnar af þættinum.

Þar segir starfsmaður RÚV, Baldvin Þór Bergsson:

„Einn af stjórnarmönnum ungra Miðflokksmanna sagði af sér eftir að hafa sagst, í hlaðvarpi, vera rasisti.“

Þetta er hugsanlega alvarlegasta lygin enda um „sjónvarp allra landsmanna“ að ræða og þetta er ekki leikur að orðum eins og í fyrstu grein MBL heldur er hér um að ræða hreina og beina lygi á besta tíma í sjónvarpinu.

Baldvin Þór Bergsson

Þriðja lygin

Þriðja alvarlega lygin kom svo á MBL.is sem náði því miður ekki að halda sig við (sanngjarnan) leik að orðum og var tilefnið frétt þar sem fjallað var um Sigga Bond og hárígræðslu hans.

Þar eru birt ummæli frá Sverri Helgasyni, og er texti MBL.is nákvæmlega svona:

„Þó nokkrir hafa skrifað athugasemdir við færsluna, þar á meðal Sverrir Helgason, sem nýverið sagði sig úr stjórn Ungliðahreyfingar Miðflokksins í kjölfar umfjöllunar um yfirlýsingar hans um að vera rasisti.“

Undir þetta skrifar enginn fréttamaður, heldur er þetta skrifað nafnlaust undir liðinn ferðalög.

Ummælin um Sverri eru inni í rauða hringnum

Dæmi nú hver fyrir sig aftur hvort þarna sé ekki um hreina og beina, blákalda lygi að ræða.

Barnalegt grín alvarlegra en misbeiting fjórða valdsins?

Nú þegar ég hef rakið atburðarásina á nokkuð góðan hátt (að ég vona) þá ætla ég að koma mér að tilefni pistilsins, en það er nýleg instagram færsla fyrrum varaþingmanns Pírata og frambjóðanda sem var í oddvitasæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi í seinustu kosningum.

Þú átt ekki að spyrja þig hvernig manneskja þér finnst Sverrir Helgason vera, þú átt að spyrja hvort þér finnist í lagi að fjölmiðlar ljúgi“

Hér má nefnilega sjá þegar við rekumst á Instagram færslu hennar í beinni útsendingu:

Þar vitnar hún í grín Sverris og einnig mitt eigið, en ég er nefnilega meðstjórnandi Sverris í Bjórkastinu.

Að því loknu skrifar Lenya:

„Hægri menn vilja tjáningar- og fjölmiðlafrelsi eins lengi og það samræmist þeirra skoðunum og gildum, ef það eru birtar fréttir sem gera lítið úr þeirra málstað taka þeir frekjukast og byrja að uppnefna fjölmiðlinn sem um ræðir og einstaka blaðamenn sem starfa þar. Þetta er alvarleg þróun (fucked up, if you will) og þöggun á frjálsum fjölmiðlum og fréttaflutningi þeirra er eitthvað sem á sér stað í fasískum ríkjum.“

Ungur viðkvæmur maður leggur fjölmiðla Íslands í einelti

Umfjallanir um Bjórkastið og Sverri sjálfan get ég ekki lengur talið á fingrum annarar handar og viðurkenni fúslega að það væri langauðveldast fyrir mig persónulega, að horfa upp á Sverri taka allan þungann af þessari umfjöllun fjölmiðla, enda er hún ekki að öllu óverðskulduð þar sem hann gengst fúslega við því að stuða fólk.

En ég væri ekki mikill samstarfsmaður og enn verri vinur ef ég myndi gefa fjölmiðlum skotleyfi til að ljúga upp á hann.

Mér þykir það varhugarvert að fyrrum varaþingmanni og oddvita flokks, sem vissulega þurrkaðist út í seinustu kosningum, finnist það alvarlegra að slúbbertar með hljóðnema og aðgang að samfélagsmiðlum, noti barnalegan og jafnvel dónalegan húmor, eina vopnið sem þeir hafa, til þess að svara milljarðaveldi stærstu fjölmiðla landsins, en að þessir sömu fjölmiðlar ljúgi.

Sérstaklega þar sem það geta allir sem vilja, séð svart á hvítu, hvernig þeir notuðu veldi sitt til þess að ljúga.

Þessir menn gerðu Sverri ábyrgan fyrir hlutum sem hann sagði aldrei, því skyldu þeir ekki gerðir ábyrgir fyrir hlutum sem þeir raunverulega sögðu?

Mér þykir það mun alvarlegra að það þyki eðlilegt að blaða- og sjónvarpsmenn sem ná til hundruða þúsunda manna, geti logið upp á fólk án afleiðinga.

Það þótti nefnilega einu sinni stórmál þegar fjölmiðlar lugu upp á fólk.

Ég tel það mun minna mál að nokkrir aular úti í bæ noti þá litlu rödd sem þeir hafa til þess að svara þessum lygum með kúk og piss húmor.

Sameiginleg þöggun og lygavefur

Frosti Logason skrifaði nýlega grein þar sem hann gagnrýnir þöggun íslenskra fjölmiðla um stórmál BBC alveg þar til það leiddi til afsagna æðstu yfirmanna stofnunarinnar.

Þar er sérstakt textabrot sem á vel við hér:

„Það sem gerðist í tilfelli BBC er ekki tilviljun og ekki mistök. Þetta er afleiðing menningar þar sem markmiðið er ekki lengur að upplýsa, heldur að móta. Að ekki bara segja fréttir, heldur að stýra því hvaða skilningur á þeim er leyfður. Þetta er sama menning og margir íslenskir fjölmiðlar hafa alið innan sinna raða.“

Lygin stóra og hlutlausu fjölmiðlarnir

Sverrir Helgason er fyrsti maðurinn til að viðurkenna að stór hluti þess sem hann skrifar er einfaldlega ætlað að stuða fólk. Þess vegna vekur það furðu að stærstu fjölmiðlar landsins þurfi að grípa til þess að ljúga upp á hann því af nógu er að taka ef þeir vilja fá her hinna réttlátu til að fussa og sveia í einn dag.

Af hverju er þetta alvarlegt?

Nú veit ég að margir munu hrista hausinn og koma með það fyrirsjáanlega svar að hann eigi ekki að vera svona mikill skítbuxi ef hann vill ekki vera kallaður kynþáttahatari af fjölmiðlum og svarið við því er einfalt.

Þetta snýst ekki um Sverri Helgason.

Þetta snýst um þá reglu að við eigum ekki að leyfa fjölmiðlum að ljúga.

Sverrir er svo heppinn að vera með sterkan hóp á bakvið sig og hann er nógu heppinn til að hafa meiri rödd en flestir í gegnum bæði X aðgang sinn og hlaðvarp.

En ég ætla að hætta mér á hálan ís og slá því föstu að það er ekki jafn hávær rödd og milljarðaveldin sem ná til hundruða þúsunda manna á hverjum degi og því erfitt fyrir hann að verja sig gegn þessum lygum.

Það væri enn erfiðara fyrir meðal-Jóninn með enga rödd, ekkert hlaðvarp, engan stuðningsmannahóp.

Ég veit fyrir víst að ef Sverrir yrði beygður í duftið myndi röðin einfaldlega koma að mér eða Helga, meðstjórnanda okkar. Þannig vinna þessir miðlar, það er einn aðskilinn frá „hjörðinni“ sem hjólað er í og treyst á að enginn þori að stíga upp og verja hann því þá er sá hinn sami tekinn fyrir líka.

Það er auðveldara að horfa upp á slíka aðför í von að verða ekki næstur heldur en að stíga upp og segja stopp.

Því á morgun gæti þetta verið þú sem þeir eru að ljúga upp á.

Þú átt ekki að spyrja þig hvernig manneskja þér finnst Sverrir Helgason vera, þú átt að spyrja hvort þér finnist í lagi að fjölmiðlar ljúgi.

Og þá viltu að einhver stígi upp og segi að það sé ekki í lagi að stunda slík vinnubrögð. Vísir þurfti að beygja sig í duftið eftir að þeir birtu mynd af syni Snorra Mássonar og neituðu, þrátt fyrir beiðni móður drengsins, að skipta um mynd.

Það var ekki fyrr en uppsagnir fóru að berast sem þeir gáfu sig.

Vísir skipti um mynd eftir þrýsting

Við eigum ekki að leyfa fjölmiðlum að ljúga en meðan áhyggjur (fyrrum?) valdafólks eru meiri yfir því að viðkvæmur ungur maður leggi stærstu fjölmiðlaveldi Íslands í einelti, þá er lítil ástæða fyrir þá að hætta.

Tveir æðstu yfirmenn stærstu fréttaveitu heims þurftu nefnilega að segja af sér vegna lygi sem var í raun minni en þessar hér að ofan, þó þær hafi vissulega verið gegn valdameiri manni og haft alvarlegri afleiðingar.

Ég er líklega að bjóða þessum sömu „fjölmiðlamönnum“ að nýta platform sitt til að hjóla næst í mig í rjúkandi hefndarhug, en þá verður einfaldlega svo að vera, þeir hafa þá sýnt sitt rétta andlit.

En ég læt Sverri einan ekki taka allan hitann af hlaðvarpinu okkar á sig.

Ég skora á fjölmiðlasamsteypurnar þrjár að leiðrétta lygar sínar um Sverri.

Ekki vera ofbeldismaðurinn sem þykist vera fórnarlamb þegar honum er svarað.

Jón Þormar Pálsson

Höfundur er 5 barna faðir og nöldrari

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing