Flóðbylgjuviðvörun er nú í gildi á Hawaii eftir öflugan jarðskjálfta, sem reið yfir við Kamtsjatkaskaga í austurhluta Rússlands.
Skjálftinn mældist 8,7 að stærð og átti upptök sín grunnt í jarðskorpunni, á aðeins 19 kílómetra dýpi, samkvæmt bandarísku jarðvísindastofnuninni (USGS).
Viðvörunin var gefin út klukkan 13:33 að staðartíma (33 mínútum eftir miðnætti á íslenskum tíma) á Hawaii.
Bandaríska flóðbylgjuviðvörunarkerfið segir að skjálftinn gæti hafa valdið flóðbylgju sem geti valdið mikilli eyðileggingu, jafnvel á svæðum langt frá upptökum hans.
Í tilkynningu segir að ef flóðbylgja hafi myndast, gæti hún náð ströndum Hawaii um sex klukkustundum síðar.
Viðvörunarkerfið mun uppfæra stöðuna á hverri klukkustund eða oftar ef þurfa þykir, þar til hættan er liðin hjá.
Viðvaranir í Alaska og Japan
Flóðbylgjuviðvörun hefur einnig verið gefin út fyrir hluta Alaskaog einnig gildir viðvörun fyrir Kyrrahafsströnd suður-Alaska og Alaska-skagann, frá Chignik Bay að Unimak Pass.
Í Japan hefur veðurstofan gefið út flóðbylgjuviðvörun fyrir hluta Kyrrahafsstrandar landsins.
Bylgjur allt að einum metra gætu náð landi, en jarðskjálftinn fannst aðeins lítillega í Hokkaido samkvæmt japanska ríkissjónvarpinu NHK.