Hundruð foreldra saka BBC um að hafa skaðað börnin þeirra með því að „styðja trans aktívisma“.
Foreldrahópurinn Bayswater Support Group (BSG), sem samanstendur af 650 foreldrum barna og unglinga hefur sent Ofcom, breska fjölmiðlaeftirlitinu, formlega beiðni um rannsókn á umfjöllun BBC.
Nútíminn sagði áður frá því að skýrsla frá eftirlitsaðilum hefði lýst yfir svipuðum áhyggjun.
Erfiðleikar BBC halda áfram – Minnisblað sakar stöðina um að þagga niður gagnrýni á transmál
Segja BBC hafa hunsað áhyggjur og ekki sinnt hlutleysi
Í bréfi hópsins til Ofcom er BBC sakað um að brjóta gegn skyldu sinni um hlutleysi.
Foreldrarnir segja að í áratug hafi umfjöllun BBC verið einhliða, líkt og pólitískur áróður sem hafi lofað trans-upplifun án gagnrýninnar greiningar.
BSG segir jafnframt að æðstu stjórnendur BBC, þar á meðal Jonathan Munro, yfirmaður fréttadeildar, hafi ítrekað hundsað kvartanir og vanmetið áhyggjur foreldra.
Í nokkrum tilfellum telja foreldrar að BBC hafi jafnvel hvatt börn til óafturkræfra læknisfræðilegra aðgerða.
„Við getum ekki afturkallað skaðann sem þetta hefur valdið,“ segir talsmaður hópsins, „en við vonum að Ofcom bregðist loksins við áralangri vanrækslu á að fylgja eftir óhlutdrægni og ábyrgri umfjöllun.“
Fjöldi þátta nefndir sem dæmi um brot
Hópurinn nefnir bæði fréttaumfjöllun og afþreyingarþætti sem þeir telja hafa brotið gegn reglum Ofcom um hlutleysi og vernd barna.
BSG heldur því fram að slík umfjöllun ofmeti áhættu sjálfsvíga, ýki tengsl milli íþróttastefnu og sjálfsskaða og kynni trans aðgerðir sem einfaldar lausnir á flóknum vandamálum barna á unglingsaldri.
Nýjasta krísan í röð ásakana á hendur BBC
Áskorunin kemur á sama tíma og BBC glímir við ásakanir um víðtæka hlutdrægni eftir að minnisblað, samið af uppljóstrara, var birt í breskum fjölmiðlum.
Þar er BBC m.a. sakað um rangfærslur í fréttum af Donald Trump og hlutdrægni í málum er varða transmál, loftslagsmál og átökin í Gaza.
BBC hafnar ásökunum og segist þegar hafa gert breytingar
BBC segir að það hafi þegar endurskoðað verklag í umfjöllun um kyn og kynvitund.
Í yfirlýsingu segir að fréttastofan hafi gert breytingar á þeim atriðum sem mest voru gagnrýnd .
„Við höfum ekki alltaf gert allt rétt,“ sagði Richard Burgess, yfirmaður á BBC, á nýlegum fundi með starfsfólki. „En við höfum náð framförum og munum halda áfram að hlusta á raddir fólks frá ólíkum reynsluheimum.“
Ofcom staðfestir að bréfið hafi borist og verði tekið til skoðunar.
BBC í vaxandi vanda vegna trausts og tengsla við áhorfendur
Ásakanir foreldrahópsins bætast við breiðari áhyggjur um stöðu BBC í bresku samfélagi.
Ný skýrsla frá Public Accounts Committee bendir á að BBC glími nú við tvöfaldan vanda: unga áhorfendur sem tengja ekki við dagskrána og aldraða áhorfendur sem segjast missa aðgengi vegna stafrænna breytinga.
Nefndin varar við því að „BBC sé nú á hálum ís“ og að án betri stefnu í þjónustu við alla hópa og sanngjarna innheimtu afnotagjalds geti stofnunin misst bæði traust og hlutverk sitt sem fjölmiðill allra landsmanna.
BBC segir í svarinu að nauðsynlegt sé að endurskoða fjármögnun, styrkja óhlutdrægni og tryggja að stofnunin haldi áfram að þjóna öllum landsmönnum.