Framsókn leitar að nýju blóði – Sigmar Vilhjálmsson orðaður við leiðtogahlutverk

Framsóknarflokkurinn stendur nú á krossgötum. Fylgi flokksins hefur dalað verulega undanfarin misseri og mælist hann nú með um eða undir 7 prósenta fylgi í skoðanakönnunum. Ljóst er að vilji flokkurinn endurheimta fyrri styrk þarf róttæka endurnýjun, bæði í forystu og áherslum.

Þegar hafa tvær konur lýst yfir áhuga á formennsku í flokknum. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar og fyrrverandi ráðherra, tilkynnti nýverið að hún hyggist bjóða sig fram til formanns, líkt og Ingibjörk Ísaksen, þingmaður flokksins. Sú þróun hefur ýtt undir mikla umræðu innan Framsóknar um framtíð flokksins og hvert skuli stefna.

Auglýsing

Samhliða þeirri umræðu hefur farið að heyrast sífellt háværari orðrómur innan flokksins um að athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson gæti verið sá aðili sem margir leita að til að blása nýju lífi í Framsókn. Samkvæmt heimildum er Sigmar orðaður við framboð á næsta flokksþingi, annaðhvort til formennsku eða varaformennsku.

Kandídat sem tikkar í öll box

Sigmar á djúpar rætur að rekja til Framsóknarflokksins í báðar ættir. Faðir hans, Vilhjálmur Einarsson, fyrrverandi skólameistari á Egilsstöðum og silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikunum 1956, er ættaður af Hánefsstöðum á Seyðisfirði og Mýrum í Skriðdal. Afi hans í föðurætt, Einar Stefánsson, var byggingafulltrúi Austurlands og hafði forgöngu um uppbyggingu fyrstu húsa á Egilsstöðum.

Í móðurætt er afi Sigmars, Unndór Jónsson frá Hallgilsstöðum í Hörgárdal, kunnur framsóknarmaður „fram í fingurgóma“ og viðfang Unndórsrímna sem Kristján Eldjárn, síðar forseti Íslands, orti. Þessar rætur þykja gera það að verkum að hugsanlegt framboð Sigmars undir merkjum Framsóknar sé engan veginn langsótt.

Samkvæmt heimildum Nútímans eru margir innan flokksins spenntir fyrir þeirri hugmynd að Sigmar taki að sér leiðtogahlutverk eða verði hluti af framvarðarsveit flokksins. Hann sé talinn ferskur og óhefðbundinn kostur á tímum þar sem flokkurinn þurfi á nýjum andblæ að halda og sterkari tengingu við atvinnulífið.

Viðeigandi reynsla og tenging við lykilhagsmuni

Sigmar hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi og hefur lengi haft hátt um stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hann hefur jafnframt verið áberandi talsmaður kjúklinga-, eggja- og svínabænda og því talinn standa nær lykilhagsmunum Framsóknarflokksins á landsbyggðinni.

Í pólitískum málflutningi hefur Sigmar tekið skýra afstöðu gegn orkupakkanum og gagnrýnt innleiðingu reglugerða frá Evrópusambandinu, sjónarmið sem falla vel að hefðbundnum áherslum Framsóknar. Margir telja því að skoðanir hans og áherslur samræmist kjarnastefnu flokksins og það jafnvel betur en margra þeirra sem nú sitja í forystu.

Hvort orðrómurinn raungerist á næsta flokksþingi á eftir að koma í ljós. En ljóst er að Framsóknarflokkurinn stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum – og að eftirspurn eftir nýjum, trúverðugum leiðtoga hefur sjaldan verið meiri.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing