Angela Rayner, varaforsætisráðherra Bretlands Verkamannaflokksins, hefur verið kölluð hræsnari eftir að í ljós kom að hún hafi nýlega keypt glæsilega íbúð við sjávarsíðuna í Hove fyrir 800 þúsund pund, um 140 milljónir íslenskra króna.
Þetta er þriðja fasteign Rayner, sem þegar á stórt fjölskylduhús í kjördæmi sínu á Stór-Manchester svæðinu auk þess sem hún hefur afnot af embættisbústað í Admiralty House í Westminster.
Ráðherra predikar gegn aukhúsum meðan hún kaupir sjálf
Kaupin hafa vakið hörð viðbrögð þar sem ráðuneyti Rayner hefur ítrekað varað við neikvæðum áhrifum auka heimila og skammtímaleigu á húsnæðismarkaðinn.
Húsnæðisráðherra Bretlands og samflokksmaður Rayner, Matthew Pennycook hefur margoft bent á í þinginu að slíkt dragi úr framboði og hækki verð fyrir heimamenn.
Rayner sjálf hefur lýst yfir að Bretland standi frammi fyrir „alvarlegustu húsnæðiskrísu í manna minnum“ og gagnrýnt harðlega kaup fólks á auka heimilum vegna áhrif þess á fasteignamarkaðinn.
Harðorð gagnrýni úr stjórnarandstöðu
Mótherjar í stjórnmálum létu ekki á sér standa. Richard Tice, varaformaður Reform UK, kallaði Rayner „Everest hræsnarinnar“ og sagði hana byggja eigin „fasteignasafn“ á meðan hún gagnrýndi aðra.
Fyrrverandi innanríkisráðherra, Priti Patel, bætti við: „Eitt sett af reglum fyrir þessa yfirlætisfullu ráðherra Verkamannaflokksins, en allt annað sett af reglum fyrir þögla skattgreiðendur Bretlands.“
Íhaldsmenn hafa jafnframt spurt hvort Rayner hafi notið skattafríðinda með því að breyta skráðu heimilisfangi sínu í tengslum við fasteignir sínar, meðal annars með mögulegri nýtingu afslátta á ráðherrabústaðnum.
„Ekki góð mynd fyrir sósíalista“
Jafnvel innan Verkamannaflokksins heyrðust efasemdir.
Þingkonan Catherine Atkinson sagði í viðtali við GB News að það væri ekki „góð mynd“ fyrir ráðherra sem skilgreinir sig sem sósíalista að sitja í þremur fasteignum á sama tíma og fjöldi fólks á erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn.
Nýja íbúðin í Hove
Samkvæmt nágrönnum keypti Rayner „stærstu og fallegustu íbúðina“ í raðhúsi með stórkostlegu útsýni yfir sjóinn.
Hún hefur sést þar í frítíma sínum, meðal annars á kajak og með vínglas á ströndinni.
Í hverfinu búa einnig þekktir tónlistarmenn á borð við Fatboy Slim og David Gilmour.
Rayner greiddi 800 þúsund pund fyrir þriggja herbergja íbúðina í maí og bætir henni við bætir því við fjögurra herbergja húsið sem hún keypti í Ashton-under-Lyne árið 2016, sem nú er metið á 650 þúsund pund.
Vörn og svör
Talsmenn Rayner segja að hún hafi keypt íbúðina til að nota sem starfsstöð á meðan hún dvelji í London.
„Við erum ekki í því að banna fólki að eiga fasteignir,“ sagði fulltrúi Verkamannaflokksins.
Þrátt fyrir þessi svör heldur pressan áfram að aukast á varaforsætisráðherrann, sem nú þarf að takast á við spurningar um trúverðugleika sinn á sama tíma og ríkisstjórnin setur fram áætlanir um að takmarka eignarhald á seinni heimilum.
