Geysiöflug sprenging vakti Íslendinga á Spáni – Reyndu að sprengja upp hraðbanka

Afar öflug sprenging vakti íbúa á Orihuela Costa á Suður Spáni snemma að morgni mánudagsins 22. september.

Fjöldi Íslendinga býr á svæðinu.

Auglýsing

Uppruni sprengingarinnar reyndist vera sá að tveir menn reyndu að sprengja upp hraðbanka Bankinter í verslunarkjarnanum Los Dolses.

Sprengingin varð rétt um klukkan fimm að morgni á Calle Algarrobo.

Leigubílstjóri, sem hafði nýverið lagt í stæði við verslunarkjarnann, sá þar tvo grímuklædda menn eiga við hraðbankann.

Annar þeirra gekk að bílnum og skipaði bílstjóranum að yfirgefa svæðið.

Skömmu síðar varð hann vitni að því hvernig mennirnir sprengdu hraðbankann og myndaðist mikill hvellur og sprenging sem olli verulegu tjóni á bankanum sjálfum og hluta framhliðar byggingarinnar.

Þrátt fyrir þetta komust þjófarnir ekki að peningunum í bankanum.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er tímasetningin einnig talin undarleg, þar sem hraðbankar eru oftast nær tómir á mánudagsmorgnum eftir helgi.

Mennirnir flúðu á fæti í átt að hringtorginu við Villamartín og voru horfnir af vettvangi áður en lögregla mætti á svæðið.

Engin meiðsl urðu á fólki, en lögreglan sagði að eignatjóni væri mikið.

Ákall um aukið öryggi

Lögreglan afmarkaði svæðið í nokkrar klukkustundir á meðan sérfræðingar skoðuðu vettvang og öryggismyndavélar voru skoðaðar.

Borgaryfirvöld í Orihuela hafa áður orðið fyrir gagnrýni vegna öryggismála á svæðinu, og hefur íbúasamtökin Unidos por la Costa ítrekað kallað eftir aukinni löggæslu.

Í sumar voru 56 lögreglumenn staðsettir á svæðinu vegna aukins ferðamannastraums, en samtök íbúa telja það ófullnægjandi.

Þau krefjast nú þjóðvarðliðið (Civil Guard) verði með fasta viðveru á Orihuela svæðinu, í ljósi fjölda ofbeldisbrota undanfarna mánuði, meðal annars hnífaárás á 29 ára írskan mann í júní og skotárás á annan aðeins nokkrum dögum fyrr.

Lögregla biður almenning um aðstoð

Rannsókn málsins er í höndum þjóðvarðliðsins og hefur ekki verið útilokað að tengsl séu við aðrar svipaðar tilraunir til rána þar sem sprengjur voru notaðar og greint hefur verið frá á svæðinu undanfarið.

„Það var eins og að vera stödd í hasarmynd,“ sagði leigubílstjórinn sem sá atvikið gerast.

Hann lýsti því að sprengingin hefði verið gífurlega öflug og áfallið mikið.

Lögregla hvetur nú alla sem kunna að hafa upplýsingar um málið til að stíga fram.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing