Það er mér mikið áhyggjuefni að ráðist hafi verið á samkynhneigðan karlmann á fertugsaldri í Gleðigöngunni sem fór fram síðustu helgi. Það sem veldur mér óhug er að árásin var framin af öðrum þátttakendum göngunnar. Þetta er enn önnur birtingarmyndin á klofningi sem hefur orðið á hreyfingu samkynhneigðra og þeirra sem hafa troðið sér í hana, með góðu eða illu — og yfirtekið hana.
Hallgeir Jónsson gekk aftarlega í göngunni með skilti sem á stóð:
Hommi! Ekki hinsegin!
Innblásturinn fékk hann frá sameiginlegum vini okkar, öldruðum homma frá New York, Fred Sargeant.
Fred Sargeant
Fred Sargeant var viðstaddur óeirðirnar við Stonewall í Christopher Street á Manhattan árið 1969. Ári seinna var hann einn skipuleggjanda fyrstu Gay Pride göngunnar.
Fred er meðstofnandi LGB Alliance sem eru systursamtök Samtakanna 22. Fred taldi sig nauðbeygðan að rísa upp úr helgum steini á efri árunum, stíga inn á sviðið aftur til þess að m.a. mótmæla og leiðrétta þær sögufalsanir sem hinsegin hreyfingin hefur staðið fyrir m.a. á atburðunum þetta örlagaríka kvöld fyrir rúmri hálfri öld.
Skiltið sem á stóð „Hommi! Ekki Hinsegin!“— eru skilaboð sem endurspegla upprunalegan skilning á samkynhneigð. Það að laðast að fólki af sama kyni.
Og kyn er jú eins og við vitum öll, hlutlæg staðreynd sem byggist á líffræði.
Rannsóknir, eins og þær sem birtar voru í Journal of Sex Research árið 2022, styðja þetta. Þar sem sýnt fram á að kynferðisleg aðlöðun er líffræðilegs eðlis. En atburðirnir í Reykjavík um helgina sýna að slík skoðun er ekki lengur vel liðin innan Hinsegin hreyfingarinnar.
Réðust á Hallgeir
Hópurinn sem réðst á Hallgeir, var m.a. skipaður af trans aðgerðasinnum, anti-Ísrael fólki og innflytjendum. Samkvæmt lýsingum hans, var hópurinn drifinn áfram af hatri og reiði yfir skilaboðunum.
Líffræðilegur raunveruleiki á víst ekki lengur upp á pallborðið hjá hinsegin hreyfingunni.
Undirritaður er til að mynda ennþá undir sakamálarannsókn fyrir að hafa opinberlega gagnrýnt Alþingi á samfélagsmiðlum fyrir frumvarp til þess ætlað að fjarlægja hugtökin „móðir“ og „faðir“ úr lögum, og löggjöf þar sem kveðið er á um að karlar sem fæði börn séu skráðir feður þeirra og svo framvegis.
Það vita allir að karlar geta hvorki fætt börn né gefið þeim á brjóst.
Samtökin ’78 hafa samt sem áður ákveðið að fara í þá vegferð, á kostnað skattgreiðenda, að kæra mig til lögreglu fyrir þessa gagnrýni mína. Ef fundinn sekur á ég allt að tveggja ára fangelsi yfir höfði mér.
Þetta er ekki bara mál um skoðanafrelsi heldur tákn um hvernig brengluð hugmyndafræði um kynjamál hefur náð völdum innan stofnana.
Lög um kynrænt sjálfræði frá 2019 gera fólki kleift að breyta kynskráningu án skilyrða, jafnvel hjá börnum undir 15 ára aldri. Einnig er hægt að skrá sig sem hlutlaust kyn. Þessi lög skortir öll raunveruleikatengsl og eru byggð á bábiljum.
Þessar bábiljur hafa svo ratað inn í menntastefnu og jafnvel kirkjustarf. Svo er öll gagnrýni flokkuð sem hatursorðræða. 21. aldar guðlast!
Þetta er ekki frjáls hugsun; þetta er dogma.
Hinsegin dagar, sem áttu að vera hátíð frelsis, eru orðin vettvangur þar sem samræming á hugmyndafræðinni er krafist, og andstaða verður skotspónn eineltis. Hallgeir varð fyrir árás vegna þess að hann vildi halda uppi upprunalegu baráttunni — rétti samkynhneigðra til að elska.
Við erum komin í ógöngur.
Rekin af skattgreiðendum
Samtökin ´78 sem eru að mestu rekin á kostnað skattgreiðenda notfæra sér yfirburða stöðu sína til þess að ofsækja samkynhneigða og aðra óbreytta borgara um allt land — fyrir að feta ekki þetta einstigi.
Í ljósi þessara atburða um síðustu helgi og undanfarin misseri, þá tel ég nauðsynlegt að eiga fund með dómsmálaráðherra vegna málsins til þess að ræða næstu skref.
Að auki, þá vil ég biðja frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, um að endurskoða hvort hún geti verið verndari samtaka sem stunda ofbeldi og ofsóknir gegn almennum borgurum og ráðast, með einbeittum brotavilja, á borgaraleg réttindi þeirra?
Getur forseti Íslands, sem sameiningartákn, verið verndari slíkra samtaka sem hafa þessa andfélagslegu iðju á samviskunni?
Núna reynir á hana að taka afstöðu, leiða deiluaðila að borðinu og ræða málin fyrir opnum tjöldum.
Eldur Smári Kristinsson
Höfundur er hugsanakrimmi og formaður Samtakanna 22