Tæknirisinn Google tilkynnti í gær að fyrirtækið muni endurvekja fjölda YouTube aðganga sem voru fjarlægðir af síðu þeirra eftir þrýsting frá ríkisstjórn Joe Biden vegna efnis sem tengdist COVID-19.
Í bréfi frá aðalráðgjafa Alphabet, Daniel Donovan, til þingmanna í dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar kom fram að 46. ríkisstjórn Bandaríkjanna hafi „skapað pólitískt andrúmsloft sem hafði það að markmiði að hafa áhrif á hvernig samfélagsmiðlar tækju á upplýsingum sem stjórnvöld töldu villandi.“
„Það er óásættanlegt og rangt þegar nokkur ríkisstjórn, þar með talin Biden-stjórnin, reynir að stýra því hvernig fyrirtæki eins og Alphabet fara með efni á sínum miðlum,“ skrifar Donovan.
Hann bætir við að fyrirtækið hafi „ætíð barist gegn slíkum afskiptum með vísan til fyrstu breytingar stjórnarskrárinnar,“ sem verndar tjáningarfrelsi.
Þekktir íhaldsmenn meðal þeirra sem fá að snúa aftur
Á meðal þeirra sem voru fjarlægðir af YouTube á síðustu árum eru Dan Bongino, núverandi aðstoðarforstjóri FBI, Sebastian Gorka, núverandi ráðgjafi Hvíta hússins í hryðjuverkavörnum, og Steve Bannon, stjórnandi hlaðvarpsins War Room.
Donovan staðfesti í bréfinu að þessir notendur myndu nú fá að snúa aftur á YouTube.
„Aldrei bannað að ræða uppruna COVID“ segir Alphabet
Donovan fullyrti einnig í bréfinu að YouTube hafi „aldrei bannað umræður um uppruna COVID-19“ og að fyrirtækið hafi „aldrei haft sérstakar staðreyndaprófanir(fact checking).“
„YouTube tekur mikilvægi tjáningarfrelsis og fjölbreyttra sjónarmiða mjög alvarlega,“ sagði Donovan.
„Við kunnum að meta íhaldsamar raddir á okkar vettvangi og viðurkennum að þær gegna mikilvægu hlutverki í lýðræðislegri umræðu.“
Rannsókn Jim Jordan þingmanns að þakka
Alphabet þakkaði einnig jafnframt dómsmálanefnd þingsins og sérstaklega formanni hennar, þingmannsins Jim Jordan (Repúblikanaflokkur, Ohio), fyrir rannsókn nefndarinnar sem hafi búið til ábyrgð í málefnum sem varða brot gegn stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi á netinu.
Þessi ákvörðun Google kemur skömmu eftir að Meta (Facebook) tilkynnti að fyrirtækið hefði hætt að nota utanaðkomandi aðila í staðreyndaprófun, eftir svipaða rannsókn.
Stjórn Biden ásökuð um „Ministry of Truth“ aðferðir
Ýmsir repúblikanar hafa um árabil sakað Biden-stjórnina um að þrýsta á samfélagsmiðla um að ritskoða efni sem henni líkaði ekki.
Í júlí 2023 komst dómari í Louisiana að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld hefðu líklega átt í samráði við stór fyrirtæki í tæknigeiranum um að ritskoða verndaða tjáningu.
Hvíta húsið hélt því fram að um væri að ræða beiðnir en ekki skipanir.