Hætt við kosningu borgarstjóra í Dublin – ótti við framboð Conor McGregor

Írska ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja á hilluna áform um að borgarstjóri í Dublin verði kosinn af fólkinu í einfaldri kosningu, að sögn Sunday Times.

Þessi ákvörðun er sögð tekin vegna vaxandi ótta við að slíkt embætti gæti orðið stökkpallur fyrir umdeildar persónur eins og bardagamanninn Conor McGregor.

Auglýsing

Þótt forsetaframboð McGregor í ár sé talið ólíklegt er litið svo á að borgarstjóraembætti í Dublin væri raunhæfari leið fyrir hann til að komast til valda.

„Það væri betra ef stjórnvöld almennt treystu fólkinu, það hefur yfirleitt rétt fyrir sér“

Slíkur borgarstjóri myndi hafa umtalsverð völd, ráða yfir miklu fjármagni og geta lagt á staðbundna skatta.

Fordæmi í Limerick

Kjör óháða frambjóðandans John Moran sem fyrsta beint kjörna borgarstjóra Limerick hefur aukið á ótta stjórnarinnar.

Í skýrslu borgaraþings Dublin frá 2022, undir forystu fyrrverandi landsliðsþjálfara Jim Gavin, var lagt til að borgarstjóri fengi vald yfir sviðum sem innihalda við húsnæðismál, samgöngur, heilbrigðis- og menntamál, auk efnahagsþróunar.

Jafnframt var lagt til að borgarstjórinn gæti breytt eða innleitt nýja skatta, haldið eftir hluta þeirra sem innheimtir eru í Dublin og aflað fjármuna með markaðstækifærum, skuldabréfum eða lánum.

Kjörtímabil yrði fimm ár með hámarki tveimur kjörtímabilum, líkt og hjá borgarstjóranum í Limerick.

„Stjórnvöld ættu að treysta fólkinu“

Eoin O’Malley, dósent í stjórnmálafræði við DCU, sagði í viðtali á Newstalk að almenningur ætti að fá að segja sitt álit, jafnvel þótt niðurstaðan falli ekki alltaf í kramið hjá stjórnvöldum.

„Það styður í raun málstað hinna sem segja ‘þeir leyfa mér ekki að bjóða mig fram’ og veitir þeim skotfæri. Það væri betra ef stjórnvöld almennt treystu fólkinu, það hefur yfirleitt rétt fyrir sér,“ sagði hann.

JD Vance hafði gagnrýnt þróun lýðræðis í Evrópu

Mikil gagnrýni á stjórnvöld hefur sprottið upp í kjölfar ákvörðunarinnar og eru oft rifjuð upp ummæli JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, sem gagnrýndi þróun lýðræðis og tjáningarfrelsis í Evrópu.

Á undanförnum mánuðum hafa stjórnvöld í nokkrum Evrópuríkjum verið gagnrýnd fyrir aðgerðir sem taldar eru grafa undan lýðræði, þar á meðal skyndileg afboðunar kosninga í Bretlandi og Rúmeníu og bann gegn framboði forsetaframbjóðanda í Frakklandi.

McGregor gagnrýndur og lofaður – og hitti Trump

McGregor hefur verið gagnrýninn á ólöglega innflytjendur á Írlandi og lýst yfir stuðningi við Donald Trump.

Hann hitti nýverið forsetann í Hvíta húsinu, sem vakti mikla athygli í írskum fjölmiðlum.

Á sama tíma hefur óánægja meðal íbúa vegna fjölgun hælisleitenda aukist og sumir telja McGregor njóta mikils stuðnings á þeim grunni.

​Samkvæmt nýjustu gögnum var fjöldi íbúa á Írlandi sem fæddir eru erlendis 1.211.883 í desember 2024.

Þetta þýðir að um 22,5% af íbúum landsins eru innflytjendur, miðað við heildaríbúafjölda sem er áætlaður um 5,38 milljónir. ​

Þessi þróun endurspeglar stöðuga fjölgun innflytjenda á undanförnum árum. Til dæmis sýna gögn frá Central Statistics Office (CSO) að á tímabilinu frá apríl 2023 til apríl 2024 fluttu 149.200 manns til Írlands, sem er mesta árlega fjölgun innflytjenda í 17 ár og er stór hluti þeirra fólk sem kemur frá MENAPT (Middle East, North Africa, Pakistan and Turkey ) löndum.

Stjórnvöld sögð óttast að pólitískur vettvangur opnist fyrir umdeildar persónur

Í samtali við The Sunday Times sagði ráðherra að lýðræðislega kjörinn borgarstjóri í Dublin myndi hafa völd á við ráðherra og að kjósendur þar væru líklegri til að styðja McGregor en annars staðar í landinu.

Niðurstaðan er sú að ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta við fyrirhugaða kosningu, og enn einu sinni vakið upp spurningar um hvort lýðræði sé aðeins virt þegar „réttir“ aðilar eru líklegir til að sigra.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing