Harðnar í deilu Gauta og Konráðs – „Aldrei séð önnur eins vinnubrögð“

Deila hagfræðinganna Gauta B. Eggertssonar og Konráðs S. Guðjónssonar tók nýja stefnu á mánudag þegar Gauti sagðist ekki vilja ræða við Konráð á X og vildi færa samskiptin yfir á Facebook, þar sem hægt væri að takmarka dreifingu þeirra við Íslendinga.

Gauti sagðist finna fyrir „spéhræðslu“ gagnvart erlendum kollegum sínum og skrifaði á ensku: „Country reputational risk at stake.“ Hann kvaðst vilja forðast að skrif Konráðs yrðu þjóðinni til skammar á alþjóðlegum vettvangi.

Auglýsing

Sagðist fyrst og fremst ræða við hagfræðinga

„Ég vil ekki eiga í þessum samskiptum við þig hér á X. Hér er ég fyrst og fremst í samskiptum við hagfræðinga og vil halda því þannig,“ skrifaði Gauti.

Guðmundur Egill vakti athygli á orðalaginu og taldi Gauta gefa í skyn að Konráð væri ekki hagfræðingur.

„Alvöru below the belt högg að kalla Konráð „ekki hagfræðing“,“ skrifaði Guðmundur.

Gauti sagði það ekki berum orðum að Konráð væri ekki hagfræðingur, en orðalagið var túlkað þannig af Guðmundi.

Konráð er með BS próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá Warwick háskóla. Hann hefur meðal annars starfað sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, aðalhagfræðingur Stefnis og hagfræðingur Viðskiptaráðs.

Gauti sjálfur kallaði Konráð „hagfræðing og höfund greiningar“ í grein sem hann birti á Vísi 31. júlí.

Segist hafa fundið 30 dæmi

Deilan snýst um 40 síðna efnahagsgreiningu sem fyrirtæki Konráðs, Kontext, vann fyrir RSE og Áfram Ísland í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB viðræður.

Gauti sakaði Konráð nú um að hafa farið með að minnsta kosti 30 rangfærslur í greiningunni.

„Ég fann villu á nánast hverri einustu blaðsíðu sem ég las í „greiningunni“ þinni. Ég hef aldrei á 25 ára ferli mínum séð önnur eins vinnubrögð,“ skrifaði Gauti.

Fullyrðingin um dæmin 30 er ekki ný. Gauti birti 24. ágúst 82 síðna greinargerð þar sem hann taldi sig hafa skjalfest 30 dæmi um villandi framsetningu í greiningu Áfram Ísland. Gögn og tölvukóðar að baki útreikningum hans voru jafnframt birt opinberlega.

Í formlegu greinargerðinni lýsir Gauti dæmunum þó sem allt frá hagstæðu vali á viðmiðum yfir í eina hreina reiknivillu. Öll dæmin 30 eru því ekki sögð vera rangar tölur eða reiknivillur heldur einnig ágreiningur um val mælikvarða, tímabila, samanburðarhópa og framsetningu.

Konráð segir greininguna ekki hafa verið til umræðu

Konráð hefur áður hafnað gagnrýni Gauta og sakað hann sjálfan um afvegaleiðingu og rangfærslur. Hann hefur meðal annars sagt að Gauti taki einstakar myndir úr samhengi og láti eins og greiningin byggist eingöngu á þeim.

Að hans sögn snerust þau upphaflega ekki um efnahagsgreininguna. Færsla hans hafi hvorki beinst að Gauta né gagnrýni hans á greininguna þegar Gauti skrifaði orðið „hack“ undir hana, sem virðist gefa til kynna að um kosningasvindl hafi verið að ræða. Greiningin hafi fyrst komið inn í orðaskiptin í svari Gauta.

Konráð gerði jafnframt athugasemd við samantektina sem fylgir 82 síðna greinargerð Gauta. Þar segir í byrjun samantektar: „Greining Áfram Íslands segir Ísland í „meistaradeild“ og ríki Evrópusambandsins í annarri deild.“

Konráð segir þetta vera hreina rangfærslu. Hvorki orðið „meistaradeild“ né slíkur deildarsamanburður komi fyrir í greiningu hans. Meistaradeildarlíkingin var höfð eftir Halldóri Benjamín Þorbergssyni á upphafsfundi Áfram Ísland.

Hann tók einnig sem dæmi mynd úr greinargerð Gauta þar sem árleg laun eru leiðrétt fyrir verðlagi til að sýna hvað þau kaupa. Á þeim tiltekna mælikvarða er Rúmenía fyrir ofan Ísland.

Konráð vísaði einnig til tveggja greina þar sem hann hefur áður svarað gagnrýni Gauta efnislega. Í þeirri fyrri, „Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað“, fór hann yfir tíu atriði og sagði sex þeirra beinlínis röng, þrjú afvegaleiðandi og eitt blöndu af hvoru tveggja.

Í síðari greininni, „Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið“, sagði Konráð að athugasemdum hans við beinar rangfærslur hefði ekki verið svarað. Hann hafnaði þar einnig þeirri framsetningu að greining hans héldi því fram að Ísland væri í annarri deild en samanburðarríkin eða tæki afstöðu til þess hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið.

Vill ekki gera þjóðina að athlægi

Gauti hafði einnig gagnrýnt þá aðferð að setja íslenskt verðlag í samhengi við hærri tekjur Íslendinga. Hann sagði Konráð hafa búið til mælikvarða sem engum hagfræðingi hefði dottið í hug og að niðurstaðan stæðist ekki gögn.

Hann sagðist geta farið betur yfir málið á Facebook, þar sem dreifing skrifanna yrði takmörkuð.

„Meira á morgun eða hinn, í vernduðu umhverfi þar sem maður gerir þjóðina ekki til skammar með að birta skrif þín,“ skrifaði Gauti.

Færslan sem Guðmundur Egill vísaði til var ekki lengur aðgengileg opinberlega þegar Nútíminn skoðaði málið en blaðamaður hafði þó vistað texta Gauta.

„Ég vil ekki eiga í þessum samskiptum við þig hér á X. Hér er ég fyrst og fremst í samskiptum við hagfræðinga og vil halda því þannig. Best að færa þetta yfir á Facebook, þar sem hægt er að takmarka dreifinguna við Íslendinga. Þar getum við kannski tekið fyrir „greiningu“ þína fyrir Áfram Ísland, þar sem ég fann skjalfestar a.m.k. 30 rangfærslur — þar á meðal hreint bull, furðulegheit og beinlínis fáránlega skilgreiningu á verðlagi.

Það er til dæmis hægur leikur að byggja greiningu á verðlagi á kenningum sem hagfræðingar hafa þekkt frá greinum Samuelsons og Balassa frá 1964. Vandræðalegra væri að þurfa að útskýra fyrir erlendum kollegum hvers vegna slíkar leiðréttingar séu yfirhöfuð nauðsynlegar í íslenskri umræðu — leiðréttingar sem byggja á skilgreiningum og samböndum sem allir læra á fyrsta ári í doktorsnámi — í stað þess að nota „kaupmátt á hvolfi“ sem mælikvarða, sem engum hagfræðingi hefur dottið í hug.

Enda eru líkurnar á að slíkt samband sé rétt, miðað við gögnin sem við sjáum, minni en 1 á móti 100 billjónum. Ég fann villu á nánast hverri einustu blaðsíðu sem ég las í „greiningunni“ þinni. Ég hef aldrei á 25 ára ferli mínum séð önnur eins vinnubrögð — og hef ég þó marga fjöruna sopið — þar til ég nennti einfaldlega ekki að halda áfram.

En það væri óþarfi að gera þetta hér. Facebook býður upp á að takmarka sýnileikann við íslenska lesendur. Ákveðin spéhræðsla gagnvart alvarlega þenkjandi fólki sem maður á samskipti við. Country reputational risk at stake. Meira á morgun eða hinn, í vernduðu umhverfi þar sem maður gerir þjóðina ekki til skammar með að birta skrif þín.“

Benti á siðareglur Brown

Guðmundur Egill birti í kjölfarið hluta úr siðareglum Brown háskóla, þar sem Gauti er prófessor í hagfræði.

Þar segir að háskólinn vænti þess að meðlimir háskólasamfélagsins sýni heilindi og séu sannorðir og hreinskilnir. Reglurnar taka meðal annars til prófessora og annarra kennara skólans.

Siðareglurnar vernda jafnframt sérstaklega akademískt frelsi, tjáningarfrelsi og rétt starfsmanna til pólitískrar þátttöku innan og utan háskólans.

Orðaskiptin koma aðeins degi eftir að Gauti sakaði Áfram Ísland um „lygakenndan áróður“ í viðtali við Heimildina og sagði nauðsynlegt að skoða baráttu samtakanna eftir kosningar og draga fólk til ábyrgðar fyrir orð sín.

UPPFÆRT:

Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar kom andsvar Konráðs við gagnrýni Gauta ekki nægilega skýrt fram. Nútíminn biður Konráð afsökunar og hefur lagfært fréttina í samræmi við það.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing