Fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson mætti nýverið í hlaðvarpið Ein Pæling hjá Þórarni Hjartarsyni, þar sem hann fjallaði um umburðarlyndi, innflytjendamál og kenningar Karls Poppers um „þversögn umburðarlyndisins“.
„Umburðarlyndur gagnvart öllum nema þeim sem eru óumburðarlyndir“
Í upphafi þáttarins snýr Heiðar sér að því sem hann kallar „ofurumburðarlyndi“ á Vesturlöndum, sérstaklega í tengslum við opin landamæri og samfélagsumræðu í kjölfar BLM hreyfingarinnar.
„Kringum BLM, í kringum þessi opnu landamæri, þá voru allir ofur umburðarlyndir,“ sagði hann.
Heiðar vísaði í kenningar Poppers og benti á að umburðarlyndi væri ákveðin þversögn:
„Þú ert umburðarlyndur gagnvart öllum nema þeim sem eru óumburðarlyndir. Þá ertu eins óumburðarlyndur og þú getur.“
Spyr hvers vegna vestræn samfélög eigi að vera umburðarlynd gagnvart hugmyndum sem hafna jafnrétti
Heiðar hélt áfram og sagði að það væri engin ástæða til að sýna umburðarlyndi gagnvart samfélagshugsjónum sem hafna grundvallarréttindum sem ríki í Evrópu.
„Er eitthvað umburðarlyndi [í Íslam] gagnvart jafnrétti kynja, gagnvart mismunandi í kynferði, gagnvart öðrum trúarbrögðum? Nei, ekkert. Hvers vegna eigum við þá að vera umburðarlynd gagnvart þessu fólki?“ spurði hann og sagði slíka hugsun ganga í berhögg við það sem Popper sagði.
Þórarinn: „Einkennilegt að gagnrýna réttindabrot erlendis en sýna blinda umburðarlyndni hér“
Þórarinn tók undir þetta og benti á að umræðan væri oft meiri háttar mótsögn.
Hann nefndi dæmi um að fólk sem berjist fyrir kvenréttindum fordæmi þróun í ríkjum á borð við Afganistan og Pakistan, en telji samt að við eigi að koma til móts við sjónarmið einstaklinga sem aðhyllist sömu hugmyndir þegar þeir komi til Evrópu.
„Það er mjög einkennilegt að við erum að sjá fréttainnslög þar sem fólk er að gagnrýna þessar aðstæður erlendis, en þegar það kemur hingað á að sýna umburðarlyndi gagnvart sömu hugmyndum,“ sagði hann.
Líkti „Queers for Palestine“ við „Chickens for KFC“
Heiðar bætti við að hann og Þórarinn hefðu nýlega setið fyrirlestur Gad Saad þar sem líking sem heillaði hann kom fram.
„Queers for Palestine væri eins og Chickens for KFC,“ endurtók Heiðar. Hann sagði að margir veltu ekki fyrir sér hverja þeir eru að bjóða velkomna og bætti við:
„Þetta er ekki fólk sem hampar ykkur eða einu sinni sýnir ykkur eðlilega virðingu.“