Heitar umræður í stórum íslenskum Facebook hóp: Deitaði „strák“ í fjóra mánuði – dró niður buxurnar og sá píku

Lífleg umræða hefur sprottið upp í Facebook hópnum Beauty Tips eftir að kona leitaði ráða vegna reynslu sem hún segist hafa orðið fyrir um helgina.

Konan greinir frá því að hún hafi verið að tala við „strák“ í fjóra mánuði. Þau hafi hist reglulega, farið saman út að borða og gert „flest það sem pör gera,“ að hennar sögn þó án þess að sofa saman. Um helgina bauð hann henni heim til sín, eldaði fyrir hana og þau enduðu í kósí kvöldi fyrir framan sjónvarpið.

Auglýsing

Hún segir svo frá því að það hitnaði í kolunum, þau byrjuðu að kyssast og hún segist hafa dregið niður um hann buxurnar. Þá hafi henni blasað við henni kvenkyns kynfæri. Hún skrifar að hún hafi staðið upp í sjokki og sagt að þau myndu ræða þetta síðar, áður en hún gekk út.

Hér má sjá upprunalega innleggið

Samkvæmt frásögn hennar bað viðkomandi hana afsökunar og sagðist ekki hafa sagt henni fyrr frá því að vera trans, þar sem hræðslan um að hún myndi hætta að tala við sig hafi verið of mikil. Konan tekur skýrt fram að hún hafi ekkert á móti transfólki, en henni finnist hún hafa átt rétt á að vita þetta áður en hlutirnir gengu svona langt.

Eftir atvikið segir hún aðilann hafa sent henni ítrekuð skilaboð, en hún hafi ekki treyst sér til að svara. Hún spyr svo aðra hópmeðlimi um ráð.

Skiptar skoðanir um upplýsingaskyldu

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og eins og búast mátti við voru ekki allir á sama máli.

Margir sögðu eðlilegt að konan upplifði áfall og hefðu talið rétt að upplýsa hana áður en sambandið varð kynferðislegt. Aðrir bentu á að fólk hefði rétt á kynferðislegum „preferensum“ og að það eitt og sér gerði engan að transfób.

Aðrir sögðu málið flóknara. Þeir bentu á að ótti og skömm fylgi því fyrir marga að koma út sem trans og að cis fólk geri sér ekki alltaf grein fyrir þeim tilfinningum. Einnig komu fram sjónarmið um að ekki væri sjálfsagt að segja frá slíku strax í upphafi sambands, heldur áður en til kynlífs kæmi.

Einn þátttakandi orðaði það svo að það væri „óréttlátt að segja ekkert áður en buxurnar fóru niður“, þó ekki væri allir sammála um að skylda væri til að upplýsa um slíkt á fyrsta degi.

Dómur í Bretlandi vakti athygli

Í ágúst 2025 var 21 árs transkona, Ciara Watkin, sakfelldur fyrir kynferðisbrot eftir að hafa ekki upplýst karlmann um líffræðilegt kyn sitt áður en sambandið varð kynferðislegt.

Dómstóllinn taldi að með því að halda svo alvarlegum upplýsingum leyndum hefði Watkin komið í veg fyrir að maðurinn gæti veitt upplýst samþykki. Samkvæmt ákæru hafði Watkin meðal annars sagst vera á blæðingum og bannað manninum að snerta sig fyrir neðan mitti, en veitt honum munnmök. Síðar upplýsti Watkin manninn hann í skilaboðum um að hann væri transkona með karlkyns kynfæri.

Transkona í Bretlandi hlaut dóm fyrir kynferðisbrot eftir að hafa ekki upplýst mann um líffræðilegt kyn sitt

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að um tvö kynferðisbrot væri að ræða, þar af eitt alvarlegt, og taldi að engin tilraun hefði verið gerð til að upplýsa manninn áður en kynlíf hófst.

Nokkur af ummælunum má svo sjá hér fyrir neðan.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing