Hildur Lilliendahl brjáluð vegna offitu

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir gagnrýnir harðlega drög að tillögu heilbrigðisráðuneytisins um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026 til 2030. Málið er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, en umsagnarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld.

Í færslu á Facebook segist Hildur sjaldan hafa sent inn umsögn áður, en að hún hafi ekki getað orða bundist í þetta skiptið vegna þeirra hugmynda sem þar eru lagðar fram. Hún segir hugmyndirnar í meira lagi galnar og gagnrýnir það sem hún telur vera niðurlægingu gagnvart feitu fólki í samfélaginu.

Gagnrýnir fyrirhugaða skimun ungmenna

Auglýsing

Það sem helst vakti viðbrögð hennar er tillaga um að vinnuhópur hanni verklag fyrir sérstaka rafræna heilbrigðisskimun ungmenna á aldrinum 16 til 19 ára. Samkvæmt drögunum yrðu einstaklingar skimaðir fyrir áhættuþáttum offitu og kallaðir í sérstakt heilbrigðisviðtal í gegnum framhaldsskólaheilsugæslu ef niðurstöður bentu til að þörf sé á inngripi.

Hildur spyr hvaða ungmennum, sérstaklega stúlkum á þessum aldri, hefði liðið vel með slíkt inngrip. Hún veltir því upp hvernig það myndi hafa áhrif á sjálfsmynd og líðan að vera kölluð á fund af hálfu ríkisins vegna holdafars síns, á aldri sem er hvað viðkvæmastur þegar kemur að sjálfsmynd.

Í umsögn sinni tekur hún undir gagnrýni annarra sem hafa tjáð sig um málið, þar á meðal fagfólks á sviði lýðheilsu og átraskana. Hún bendir á að tíðni átröskunarsjúkdóma sé á uppleið og spyr hvernig unglingar gætu mögulega gengið út af slíkum fundi líðandi betur með sjálfa sig.

Varar við inngripi þegar kemur að „þunguðu fólki“

Hildur gerir einnig athugasemdir við aðgerðir sem snúa að „þunguðu fólki.“ Í drögunum er meðal annars lagt til að sporna gegn offitu á meðgöngu og skilgreina meðferð við offitu á barnshafandi fólki. Hún telur óumbeðið inngrip yfirvalda í líf þungaðs fólks í þessu samhengi líklegra til að valda sársauka og skorti á trausti en raunverulegum árangri.

Aðgerðaáætlun til 2030

Málið, sem ber númerið S-39/2026, var birt 11. febrúar og hefur þegar fengið 31 umsögn. Um er að ræða drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026 til 2030.

Framtíðarsýn stjórnvalda sögð er fjórþætt. Að efla forvarnir og draga úr nýgengi offitu, tryggja að tíðni offitu meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndunum, meðhöndla offitu líkt og aðra langvinna sjúkdóma og tryggja aðgengi að fjölbreyttum og faglegum meðferðarúrræðum.

Aðgerðaáætlunin skiptist í þrjá meginkafla: forvarnir og skimun, gagnaöflun og rannsóknir, og heildræna heilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna.

Umsagnarfrestur rennur út í kvöld, en samkvæmt upplýsingum á samráðsgátt er yfirleitt hægt að skila umsögn eftir að frestur rennur út.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing