HIV smitaður maður og bróðir hans dæmdir fyrir að nauðga 13 ára stúlku ítrekað – Varð ólétt eftir ódæðið

Tveir bræður frá Bradford hafa verið dæmdir fyrir að nauðga 13 ára unglingsstúlku ítrekað.

Eldri bróðirinn, Patrick Leonard, vissi að hann var smitaður af HIV þegar hann nauðgaði stúlkunni sem síðar varð ólétt eftir hann.

Auglýsing

Patrick Leonard, 23 ára, viðurkenndi að hafa nauðgað stúlkunni tvisvar áður en réttarhöld hófust, en var síðan dæmdur sekur fyrir frekari nauðganir að lokinni málsmeðferð fyrir kviðdómi.

Leonard nauðgaði stúlkunni þtátt fyrir að hann vissi að hann var HIV smitaður.

Þrátt fyrir það smitaðist stúlkan ekki af sjúkdómnum.

Hún varð hins vegar ófrísk og fæddi síðar barn.

DNA próf staðfesti að Leonard væri faðirinn.

Yngri bróðirinn nauðgaði henni líka

Lannee Ksigwa, sem var 17 ára þegar brotin áttu sér stað, var einnig dæmdur sekur fyrir tvær nauðganir gegn stúlkunni.

Hann er nú 19 ára og var dæmdur í 12 ára vist í stofnun fyrir ungt fólk.

Báðir bræðurnir bjuggu á Grosvenor Terrace í Bradford.

Í réttarsal var spiluð upptaka af framburði stúlkunnar þar sem hún lýsti áhrifum nauðgananna.

Hún sagði að bræðurnir hefðu tekið frá henni sakleysið, brotið hana niður og skilið hana eftir „djúp sár sem myndu aldrei gróa.“

Hún sagðist lifa með afleiðingunum á hverjum degi.

„Sjórnsamur og ofbeldisfullur“

Dómari Andrew Hatton sagði að Patrick Leonard hefði sýnt ótrúlegt gáleysi með því að nauðga barni vitandi að hann væri HIV jákvæður.

Leonard var dæmdur í 24 ára fangelsi og þarf að afplána að lágmarki 16 ár áður en hann getur sótt um reynslulausn.

Hann verður undir eftirliti í eitt ár að lokinni afplánun.

Ksigwa fékk 12 ára dóm og verður, líkt og bróðir hans, skráður sem kynferðisafbrotamaður til æviloka.

Báðir fengu einnig ævilangt nálgunarbann gagnvart stúlkunni og öðrum sem tengjast málinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing