Hjartað mitt slær, það slær með konum og nemendum

Ljóstýran á kertinu breyttist í flóðljós þegar Hæstiréttur Bretlands kvað upp dóm sinn um daginn.

Takk Hæstiréttur Bretlands fyrir að standa fast á að orðið kona í jafnréttislögunum þýðir líffræðilega kona.

Auglýsing

Mjög mikilvægur sigur fyrir almenna skynsemi, sannleikann og réttindi kvenna.

Allt sem við vitum, en margir létu heilaþvo sig og neituðu raunveruleikanum. Reiknum með að dómurinn verði fordæmisgefandi í öllum lögum landsins því við þurfum að finna raunveruleikann að nýju.

Svona hljómuðu fyrirsagnir útlenskra blaða um dóminn

,,Transkonur eru ekki konur,” segir Daily Telegraph í fyrirsögn. ,,Sögulegur sigur fyrir konur og almenna skynsemi,” segir Daily Mail. ,,Sigur fyrir almenna skynsemi og raunveruleika,” segir Daily Express. ,,Lagaleg skilgreining konu reist á líffræðilegu kyni,” segir Guardian.

Kvenkyns fullorðinn einstaklingur

Líffræðin ræður för þegar við tölum um kyn. Konur eru kvenkyns fullorðnir einstaklingar. Ekki það, aldrei hefur efi læðst í huga minn né hjarta um hvað kona er.

Hef mótmælt því í ræðu og riti að karlgervill, karlmaður sem skilgreinir sig sem konu, geti verið kona og nýtt réttindi kvenna í orðum og á borði.

Hef einnig mótmælt að kennarar og skólabækur grunnskólabarna beri þá þvælu út að karlmaður geti verið kona og öfugt við misgóðar undirtektir meðal svokallaðra sérfræðinga sem sjá um kennslu í skólum og forystusveit skólafólks.

Nú heyrir þessi þvættingur vonandi sögunni til.

Tiltekt í skólum og skólabókum

Í mörgum skólabókum er kennt á skjön við dóm Hæstaréttar Bretlands um kynin og hina almennu skynsemi.

Í bókunum er blákalt logið að skólabörnum.

Í bókunum er sú þvæla sögð að kyni sé úthlutað við fæðingu og hægt sé að skipta um kyn. Að stelpa geti haft typpi og strákur píku.

Að börn geti fundið út síðar á lífsleiðinni hvaða kyn þau eru. Það vita allir heilvita menn að svo er ekki. Hefur aldrei verið og mun aldrei verða.

Nú er tímabært að sannleikurinn nái yfirhöndinni aftur í skólakerfinu rétt eins og réttarkerfinu í Bretlandi

Að þjóðir heims þurfi að fara með jafn einfaldan sannleik í gegnum Hæstarétt er hjákátlegt.

En þegar menn eru ginkeyptir fyrir fræðum eins og kynjafræðinni, þar sem undirstaðan er tilbúningur í hugum manna, er ekki á vísan að róa.

Þegar kennarar þora ekki að stíga fram og segja hingað og ekki lengra boðar það ekkert gott. Enda hefur það sýnt sig.

Forystufólk KÍ og kennarar

Kennarasamband Íslands með Magnús Þór Jónsson formann og Mjöll Matthíasdóttur formann félags grunnskólakennara brugðust íslenskum nemendum og kennurum.

Báðir þessi formenn hoppuðu á tilbúninginn og létu örhóp svipta sig skynsemi í von um frægð og frama meðal trans-fólks og áhanganda.

Kannski hefur pólitíkin sitt að segja í gjörðum Magnúsar Þórs Jónssonar formanns KÍ, en hann er yfirlýstur Samfylkingarmaður en sú fylking er sokkin í trans-hugmyndafræðina eins og núverandi dómsmálaráðherra hefur sýnt fram á.

Báðir þessir formenn ásamt stjórn KÍ eiga að skammast sín fyrir að hafa ekki mótmælt þeirri hugmyndafræði sem byggir á ranghugmyndum um kyn í skólakerfinu og skólabókum.

Þau eiga að skammast sín fyrir að hafa ekki varið kennara gegn þessum ranghugmyndum þar sem þeim var gert að kenna þær.

Þau eiga að skammast sín fyrir að hafa ekki verndað nemendur gegn þeim kennurum sem hoppuðu á ranghugmyndina að kona geti verið með typpi og pung og strákur með píku.

Þau eiga að skammast sín fyrir að samþykkja karlgervla, karlmenn sem skilgreina sig sem konur, inn í einkarými kvenna og stúlkna.

Það er vonandi að Mjöll Matthíasdóttir formaður grunnskólakennara og kennarar læri eitthvað af því sem fram hefur komið og láti vera að ljúga að skólabörnum, ljúga því að strákar geti verið stelpur og stelpur strákar og styðja þau gervifræði.

Nóg er komið af lyginni.

Nú er tímabært að sannleikurinn nái yfirhöndinni aftur í skólakerfinu rétt eins og réttarkerfinu í Bretlandi.

Hvað með trans fólk

Ekkert með það.

Trans fólk heldur áfram að lífi sínu lífi og lifir því eins og það vill. Það vill nefnilega svo skemmtilega til að trans-einstaklingur er annað tveggja, karl eða kona sem hafa réttindi sem slíkir.

Það þarf engin sér-eða forréttindalög fyrir trans- fólk.

Framvegis verða konur vonandi lausar við að karlgervill/karlkona reyni að troða réttindum kvenna um tær í orði og á borði.

Framvegis verður hommi karlmaður og lesbía kvenmaður.

Of lengi hafa menn reynt að telja samfélögum trú um að karlgervill geti verið lesbía með typpi og pung og að konugervill sem hefur skorið af sér brjóstin geti verið hommi.

Hæstiréttur Bretlands hefur sem betur fer kveðið skýrt á um þetta.

Samkynhneigt fólk lifir bara eins og fyrir dóminn, elskar sama kyn og það er sjálft.

Tvíkynhneigðir lifa eins og fyrir dóminn, elskar bæði karl- og kvenmann. Gagnkynhneigðir lifa líka áfram og elska gagnstæða kynið.

Sá sem elskar sjálfan sig er sjálfselskur, sem hugsar mest um eigin hag og þarfir, en það er ekki sérstök kynvitund eins og gervivísindin vilja halda fram.

Þeir sem hafa kynvitund sem það vill kalla ýmsum nöfnum halda því áfram án þess að troða því í lög og reglur og nemendur.

Það vill svo til að okkur hinum kemur ekki við hvernig lífi einstaklingur lifir eða hvað hann kallar sig. Engin réttindi hafa verið fjarlægð frá þessu fólki en réttindi kvenna endurheimt, Hæstaréttardómur Bretlands sá til þess.

Helga Dögg Sverrisdóttir, M.Sc. M.Ed. B.Ed og sjúkraliði.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing