Hjónin Boris Gurman, 69 ára, og eiginkona hans Sofia Gurman, 61 árs, eru tvær hetjur sem féllu þegar þau reyndu að stöðva einn árásarmannanna í hryðjuverkaárásinni á Hanukkah hátíð gyðinga á Bondi Beach í Sydney á sunnudag.
Samkvæmt áströlskum miðlum mættu hjónin Sajid Akram, 50 ára, þegar hann steig út úr bílnum ásamt syni sínum, Naveed Akram, 24 ára.
Myndskeið sem farið hefur víða á samfélagsmiðlum sýnir Boris Gurman takast á við Akram og rífa af honum skotvopn, áður en eiginkona hans kom honum til aðstoðar.
Skotin til bana á gangstéttinni
Hjónin börðust við árásarmanninn í nokkrar mínútur en Akram náði í annað vopn og skaut þau bæði til bana á gangstéttinni við bílinn.
Myndir frá vettvangi sýna að Sofia Gurman lést þar sem hún lá yfir eiginmanni sínum.
Þau dóu hlið við hlið, faðmandi hvort annað.
Afmæli og brúðkaupsafmæli fram undan
Fjölskylduvinur segir að sonur hjónanna, sem býr erlendis, hafi verið í heimsókn hjá foreldrum sínum undanfarnar vikur.
Sofia ætlaði að halda upp á 62 ára afmæli sitt á miðvikudag og hjónin voru jafnframt að undirbúa 35 ára brúðkaupsafmæli sitt í janúar.
Skothríð á mannfjölda á ströndinni
Eftir að hafa skotið hjónin hlupu feðgarnir að göngubrú í nágrenninu og hófu skothríð á mannfjöldann sem var að fagna Hanukkah á ströndinni.
Alls létust 16 manns í árásinni og um 40 slösuðust.
„Hugrekki og fórnfýsi“
Boris og Sofia Gurman voru rússneskir gyðingar frá fyrrum Sovétríkjunum sem höfðu búið í Ástralíu í áratugi.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Jewish Board of Deputies í Nýja Suður-Wales var Boris fyrrverandi bifvélavirki, þekktur fyrir hjálpsemi en Sofia starfaði hjá Australia Post og var vel liðin meðal samstarfsfólks og í nærumhverfi sínu.
„Hugrekki þeirra og fórnfýsi endurspegla nákvæmlega hvernig fólk þau voru,“ segir í yfirlýsingunni.
Vitni lýsa þeim sem hetjum
Vitni hafa lýst Boris Gurman sem hetju og segja að hjónin hafi verið meðal þeirra fyrstu sem reyndu að stöðva árásarmanninn.
Einn sjónarvottur sagði að fjölskylda þeirra yrði að vita að hann hafi verið að reyna að bjarga mannslífum.
Forsætisráðherra Ástralíu, Anthony Albanese, hefur heitið því að hugrekki þeirra sem reyndu að stöðva árásarmennina verði verðlaunað, þar á meðal hjónanna sem féllu í tilraun sinni til að verja aðra.
