Hópur manna sem kallar sig ‘Skjöld Íslands’ gengur um borgina og passar upp á íbúa

Hópur manna sem kallar sig Skjöldur Íslands kom saman föstudagskvöldið 18. júlí síðastliðinn og fóru í sína fyrstu vettvangsferð en að í tilkynningu frá hópnum segir að þeir hafi farið í hálfgert „foreldratölt“ niður Laugaveginn.

Fordæma allt ofbeldi

Blaðamaður hringdi í meðlim hópsins sem segir að hugmyndin að hópnum hafi kviknað fyrir nokkru síðan.

Auglýsing

Skýrt er tekið fram að hópurinn fordæmir allt ofbeldi og að um sé að ræða sístækkandi hóp sem mun stunda reglulegt „foreldrarölt,“ eða einskonar hverfisgæslu eins og þekkist víða, á höfuðborgarsvæðinu ásamt völdum stöðum á landsbyggðinni.

„Þetta eru ekki einstaka tilfelli heldur eru tugir kvenna að hafa samband við okkur og segja okkur frá ofbeldi sem þær urðu fyrir en kærðu ekki til lögreglu“

Maðurinn segir tilganginn með gæslunni einfaldlega þann að passa upp á hvert annað og að reyna að gera okkar nánasta umhverfi aðeins öruggara fyrir alla.

Tilkynningum um ofbeldi rignir inn eftir stofnun hópsins

Að sögn mannsins var það sem mest kom á óvart að eftir að hópurinn var gerður opinber fór að rigna inn tilkynningum á meðlimi hópsins, þar sem fólk, mestmegnis konur, sögðu frá ofbeldi þar sem erlendir menn komu við sögu en ekki haft fyrir að tilkynna til lögreglu.

„Þetta eru ekki einstaka tilfelli heldur eru tugir kvenna að hafa samband við okkur og segja okkur frá ofbeldi sem þær urðu fyrir en kærðu ekki til lögreglu.“

Aðspurður sagði hann að margar slíkar frásagnir kæmu beint frá þolendum og því ekki um einhverjar kjaftasögur að ræða.

Fyrsta ferð hópsins

í sinni fyrstu vettvangsferð söfnuðust meðlimir hópsins saman á Ingólfstorgi þar sem þeir vildu, að eigin sögn, „sannreyna ýmsar ábendingar sem borist hafa“ um meint brot erlendra leigubílstjóra.

Hópurinn segist hafa átt friðsamt samtal við lögreglu í miðborginni þar sem þeir útskýrðu tilgang ferðar sinnar.

„Við áttum ágætt samtal við lögregluna og útskýrðum veru okkar og þeirri friðsemd sem við erum með. Af okkur stafar engin ógn.“

Þar hafi hópurinn hitt fyrir aðila sem „hefur margoft bent á stöðuna og varað við þróuninni. Hann hefur t.a.m. birt á Facebook upptökur af erlendum leigubílstjórum sem komast upp með ótrúlegt hátterni.“

Blaðamaður telur óhætt að fullyrða að þarna sé um að ræða Friprik Einarsson, betur þekktan sem Taxý Hönter en hann þarf varla að kynna fyrir lesendum Nútímans.

Fullyrða að lögreglan hafi hunsað tilkynningu um ólöglegan leigubíl

Þeir fullyrða að þeir hafi orðið vitni að leigubíl sem ekki hafði tilskilin leyfi og að lögregla hafi verið látin vita en ekkert hafi verið gert.

„Þessi sofandaháttur er lygilegur og við sáum það þarna,“ segir í yfirlýsingu þeirra.

„Ég verð að segja að við vorum búnir að heyra um þetta aðgerðarleysi hjá lögreglunni. En núna á ég ekki orð yfir viðbrögðum lögreglunnar.
Þetta er einmitt það sem við höfum heyrt og fengið staðfest frá m.a. fórnarlömbum nauðgunar sem m.a. þora ekki að segja frá. Fólk sem hefur verið ellt heim til sín og háttsemi erlendu leigubílstjóranna er hreinlega ógeðsleg.
Dæmi er um konur sem neyðast til að taka strætó til að komast á milli staða sem hafa verið slegnar upp úr þurru og kallaðar t.d. uppnefndar sem feitar tussur!“

Maður með sverð – lögregla bregst ekki við

Á sama kvöldi segist hópurinn hafa orðið vitni að manni með „að lágmarki meters langt sverð“ á lofti á Ingólfstorgi.

Maðurinn hafi dansað um og sveiflað vopninu en lögreglumenn á bifhjólum hafi ekið framhjá honum án þess að bregðast við.

„Það sem við héldum að væri viðbragð vegna mannsins með sverðið var allt annað. Þeir virtust vera uppteknir með að fylgjast með hættulegu mönnunum í peysunum – okkur,“ segir í frásögninni.

Ekki hræddir við að vera kallaðir öllum illum nöfnum

Meðlimir hópsins segjast ekki vera hræddir við að vera kallaðir öllum illum nöfnum enda séu meðlimir hópsins öllu vanir í þeim efnum.

„Við þurfum að hafa hátt, hátt fyrir margar af þeim stúlkum sem hefur verið nauðgað, en þora ekki að segja frá“

Í tilkynningu hópsins segir einnig að þeir séu meðvitaðir um að margir meðlimir hópsins eigi „skrautlega“ fortíð en allir hafi þeir snúið við blaðinu og séu nú að hjálpa til við að gera landið að betri stað.

Krefjast viðbragða og hvetja fólk til að stíga fram

Hópurinn segist ekki ætla að gefast upp og hvetur fólk til að segja frá eigin reynslu og neyða lögregluna til aðgerða með því að beina kastljósinu að aðgerðarleysi yfirvalda.

Er nefnt dæmi þar sem vitnað er í frásögn konu sem varð fyrir tilefnislausri árás í strætó en sagði að lögregla hefði sýnt málinu lítinn áhuga.

Hópurinn er búinn að skipuleggja margar slíkar ferðir sem hann mun fara í á næstunni.

„Við þurfum að hafa hátt, hátt fyrir margar af þeim stúlkum sem hefur verið nauðgað, en þora ekki að segja frá,“ segir í lok yfirlýsingarinnar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki tjáð sig um málið þegar þetta er skrifað en Nútíminn hefur sent fyrirspurn og mun birta svarið strax og það berst.

Hægt er að sjá frásögn hópsins af fyrstu ferðinni í heild sinni hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing