Hryllingur í Belfast – „Hjálp, hann er að saga af honum hausinn!“

Lögreglan á Norður Írlandi hefur handtekið mann á þrítugsaldri, sem er frá Súdan, grunaðan um tilraun til manndráps eftir hrottalega hnífaárás í norðurhluta Belfast á mánudagskvöld.

Árásin átti sér stað um klukkan 22:30 á mánudagskvöld. Fórnarlambið, karlmaður á fertugsaldri, hlaut alvarlega áverka á andliti, hálsi og baki og liggur nú á sjúkrahúsi. Líðan hans er sögð alvarleg.

Auglýsing

Íbúar gripu inn í

Myndskeið sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum sýna íbúa hverfisins reyna að stöðva árásarmanninn áður en lögregla kom á vettvang. Á myndböndunum má meðal annars sjá mann vopnaðan kylfu takast á við hinn grunaða.

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Norður-Írlandi (PSNI), sagði að um grimmilega árás hefði verið að ræða og að sérstakt neyðarástand hefði verið lýst yfir vegna málsins.

Hann hrósaði jafnframt þeim íbúum sem gripu inn í og reyndu að koma í veg fyrir frekari árásir.

„Þeir sýndu mikið hugrekki og samfélagslega ábyrgð,“ sagði hann.

Forsætisráðherra fordæmir árásina

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, sagði árásina viðbjóðslega og sagðist ekkert umburðarlyndi hafa gagnvart slíku ofbeldi á götum landsins.

„Hugur minn er fyrst og fremst hjá fórnarlambinu. Ég vil einnig þakka fyrstu viðbragðsaðilum og þeim almennu borgurum sem gripu inn í,“ sagði Starmer.

Rupert Lowe, formaður Restore Britain, sagði að slíka menn ætti að dæma til dauða.

Frétt hefur verið breytt

Upprunalega var sagt frá því að maðurinn væri Sómali en nú er búið að staðfesta að hann er frá Súdan.

Við vörum við myndskeiðinu hér fyrir neðan.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing