Huginn Þór segir Helgu Völu Helgadóttur hafa falið eigin ritgerð vegna þess að hún hentaði ekki pólitískri afstöðu hennar

Huginn Þór Grétarsson, barnabókahöfundur og aðgerðasinni, var gestur í hlaðvarpinu Bjórkastið. Huginn ræddi meðal annars um íslenskt réttarkerfi, Samtök um karlaathvarf og stöðu feðra og karlmanna almennt þegar Helga Vala Helgadóttir, fyrrum þingmaður, barst í tal.

Í þættinum hélt Huginn því fram að meistararitgerð sem Helga Vala skrifaði á sínum tíma benti til þess að réttarkerfið á Íslandi mismuni körlum.

Auglýsing

„Ég ætlaði að koma með einn tilgangslausan punkt í viðbót, það var Helga Vala. Hún er svolítið með tvískinnungshátt og ekki alveg svona þar sem hún er séð. Hún gerði þannig að hún vann meistararitgerð sem heitir Misskilin mannúð. Niðurstaðan var sú að réttarkerfið á Íslandi mismunar karlmönnum,“ segir Huginn í þættinum.

Segir ritgerðina hafa verið falda

Huginn hélt því einnig fram að niðurstöður ritgerðarinnar hafi ekki samræmst þeirri pólitísku stefnu sem Helga Vala tók síðar þegar hún gekk til liðs við Samfylkinguna.

„Þetta samrýmdist náttúrulega ekki því þegar hún var hardcore feministi og fór í Samfylkinguna og Samfylkingin var upp á sitt versta í femínismanum. Þannig að hún faldi ritgerðina. Þetta þarf eitthvað mikið til að þetta sé samþykkt en háskólarnir gerðu þetta. Þeir földu þessa ritgerð.“

Hann sagðist jafnframt sjálfur hafa ritgerðina undir höndum.

„En ég á hana til, ég get sagt það hér að ég á hana til.“

Vísar í nýlegt mál

Í framhaldinu vísaði Huginn í nýlegt máls sem hann segir endurspegla það sem hann telur vera kerfisbundna mismunun í réttarkerfinu.

„Við erum búin að sjá og skoða og við erum að sjá alveg dæmi eftir dæmi. Við sjáum nýlega málið, hérna gufunesmálið þar sem stúlkan er ekki ákærð og dómari skamma saksóknara og fleira.“

Hann sagði jafnframt að konur fengju síður ákæru eða vægari dóma fyrir sambærileg brot.

„Þetta er svo mikið inn í réttarkerfinu þar sem konur eru ekki að fá ákæru fyrir sömu brot. Þær eru ekki að fá dóma fyrir sömu brot og fá mildari dóma.“

Telur rannsóknir benda til sömu niðurstöðu

Að lokum sagði Huginn að rannsóknir bentu einnig til þess að hluti mála endi án ákæru.

„Við erum með rannsóknir og utan, ég held að það séu 40% eða eitthvað sem sleppur bara alveg. Þetta var allavega þannig að þá var hægt að taka ákveðin brot sem eru ekki svona matsatriði beint og var bara kristaltært og það var bara samt út frá kyni verið að mismuna, en þetta felur hún,“ sagði Huginn Þór.

Blaðamaður gat staðfest tilvist ritgerðarinnar inni á Skemma.is en lokað er fyrir aðgang að henni.

Ekki náðist í Helgu Völu í síma við gerð fréttarinnar.

Hægt er að sjá myndbrotið hér fyrir neðan og þáttinn í heild sinni neðst í fréttinni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing