Allt að 226 börn, sum aðeins tíu ára gömul, munu fá sprautur með kynþroskabælandi hormónum, eða hormóna“blokkera“, í fyrsta sinn í klínískri tilraun sem er studd af breska heilbrigðiskerfinu, NHS.
Tilraunin er sú fyrsta sinnar tegundar innan NHS og miðar að því að kanna hvort lyfin geti verið örugg og gagnleg fyrir börn sem skilgreina sig sem trans og vilja breyta líkama sínum til að líkjast því kyni sem þau samsama sig við.
Rannsakendur hafna ásökunum um að verið sé að þvinga börn til meðferðar
Rannsakendur hjá King’s College London segja að rannsóknin sé byggð á öruggustu og ströngustu hönnun sem völ er á.
Samkvæmt þeimr verða börnin undir stöðugu eftirliti til að fylgjast með hugsanlegum aukaverkunum, meðal annars áhrifum á frjósemi, þéttleika beina og þroska heilans.
Þrátt fyrir það vara gagnrýnendur við alvarlegum áhættum og segja að ekki séu næg sönnunargögn fyrir gagnsemi meðferðarinnar.
Gagnrýnendur segja rannsóknina óforskammaða
Maya Forstater, forstjóri réttindahópsins Sex Matters, segir rannsóknina „óforskammaða“.
„Þetta eru stór inngrip, án sannana um ávinning og það sem verra er, vísbendingum um varanlegan skaða fjölgar. Það er bæði glannalegt og siðlaust að setja enn fleiri börn í tilraunameðferð,“ segir hún.
Stephanie Davies-Arai, stofnandi Transgender Trend, tekur í sama streng og segir óskiljanlegt að rannsóknin hafi fengið samþykki.
„Við höfum ekki næg gögn um ávinning en við vitum af alvarlegum áhættum, sérstaklega þegar kemur að frjósemi, bein- og heilaþroska,“ segir hún.
Rannsóknin spratt upp úr Cass-skýrslunni
Áformin voru kynnt árið 2024 í kjölfar Cass Review, yfirgripsmikillar skýrslu sem komst að þeirri niðurstöðu að gæði rannsókna á áhrifum blokkeranna væru léleg.
Eftir skýrsluna voru kynþroskabælandi hormónar bannaðir í breska heilbrigðiskerfinu.
Áður höfðu hundruð barna fengið þau á umdeildri kynleiðréttingardeild GIDS á Tavistock-spítalanum í London, sem Cass gagnrýndi harkalega fyrir að hafa sett börn í hættu.
Börn allt niður í 10 ára
Yngstu þátttakendur rannsóknarinnar verða 10–11 ára stúlkur og 11–12 ára drengir.
Hámarksaldur er 15 ár og 11 mánuðir.
Helmingur barnanna mun fá blokkerana strax og eiga að nota í tvö ár.
Hinn helmingurinn fær lyfin eftir eins árs bið og er fylgt eftir í tvö ár til viðbótar.
Endanlegar niðurstöður verða því ekki birtar fyrr en eftir fjögur ár.
Lyfið sem líklegast verður notað heitir Triptorelin, sem hefur verið notað frá níunda áratugnum til að seinka kynþroska hjá börnum sem byrja of snemma að verða kynþroska.
Sum börn gætu haldið áfram í meðferð þrátt fyrir bann
Dr. Emily Simonoff, yfirmaður rannsóknarinnar og prófessor í barnageðlækningum við King’s College London, segir að í sumum tilfellum gætu börn haldið áfram á blokkerunum eftir lok rannsóknarinnar, þrátt fyrir bann NHS.
„Í lok tilraunarinnar verður hvert barn metið einstaklingsbundið og mun mögulega að halda áfram á lyfjunum verði það metið æskilegt,“ segir hún.
Hún hafnar því að verið sé að þvinga börn til meðferðar og segir að siðferðilega hefði átt að gera slíka rannsókn fyrir tíu til fimmtán árum.
Önnur rannsókn fer fram samhliða – skoðar áhrif á heilaþroska
Önnur tilraun, sem búið er að gefa leyfi fyrir, mun fela í sér um 100 þátttakendur og miðar að því að kanna áhrif lyfjanna á heilaþroska með samanburði við ungt fólk sem fær ekki lyfin.
Samanlagt kosta rannsóknirnar um eða 10,7 milljónir punda eða um 1,8 milljarð íslenskra króna.