Hvað varð um peninginn sem safnaðist fyrir fórnarlömb skógareldanna í Los Angeles? – Milljarðar finnast ekki

Hollywood og tónlistariðnaðurinn sameinuðust í janúar til að styrkja þá sem urðu fyrir skaða vegna Los Angeles skógareldanna með söfnunarviðburðinum FireAid.

Alls söfnuðust 100 milljónir dollara.

Auglýsing

Nú, sex mánuðum síðar, vakna spurningar: hvert fór allt þetta fé?

50 milljónum þegar úthlutað – Hinn helmingurinn finnst ekki

Í febrúar var fyrri hluta styrktarfjárins, 50 milljónum dollara, dreift á milli um það bil 120 samtaka.

Rannsóknarþátturinn 7 On Your Side hafði samband við þau öll og fékk svör frá meira en 50.

Þar kom í ljós að féð hefur, að þeirra sögn verið nýtt í fjölbreytta hjálp, frá bráðabirgðahúsnæði til dýralækninga og mengunarmælinga en einungis örfá fengust til þess að sýna reikninga fyrir þessum aðgerðum.

Húsnæði, ráðgjöf og aðstoð við dýr

Neighborhood Housing Services of L.A. County fékk 1,5 milljónir dollara til að veita fjárhagsráðgjöf og tímabundið húsnæði fyrir þá sem misstu heimili sín.

Pasadena Humane Society fékk 250 þúsund dollara til að sinna dýrum sem urðu heimilislaus og slösuð í eldunum.

Heal the Bay fékk 100 þúsund dollara til að kanna mengun við strendur Los Angeles.

Spurningar um stjórnunarkostnað

Öll samtök sem fengu styrki frá FireAid undirrituðu samkomulag um að ekkert af fénu sem safnaðist skyldi notað í rekstrarkostnað.

Samt sem áður greindu nokkur þeirra frá því að þau hefðu notað hluta styrksins í stjórnunarkostnað.

Talsmaður FireAid segir að unnið verði að því að beina þeim fjármunum beint til aðstoðar áður en árið er liðið.

Óljóst hvar 50 milljónir dollara eru niðurkomnar

Engar upplýsingar hafa komið fram um það hvernig seinni hluti FireAid söfnunarinnar, hinar 50 milljónirnar, verði ráðstafað eða hvar þær eru niðurkomnar í dag.

Samkvæmt heimildum ABC virðist stór hluti peninganna hafa ratað inn í samtök sem eru svokölluð non-profit en þaðan hafi féð ekki skilað sér.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing