Hvíta húsið birti á síðu sinni nýja skýrslu frá sérstakri nefnd Bandaríkjaþings um uppruna kórónuveirufaraldursins.
Skýrslan dregur í efa þá kenningu að veiran hafi borist náttúrulega í menn og bendir þess í stað til þess að líklegasta skýringin sé leki úr rannsóknarstofu í Wuhan, Kína.
Í skýrslunni kemur fram að veiran beri með sér líffræðilega eiginleika sem ekki finnast í náttúrunni og að öll smit megi rekja til einnar upphaflegrar smitleiðar, ólíkt fyrri heimsfaröldrum sem áttu sér upptök á mörgum stöðum.
Wuhan stofnunin og EcoHealth undir smásjánni
Verið er að rannsaka Wuhan Institute of Virology, sem sérhæfir sig í rannsóknum á SARS-veirum og hefur stundað svokallaðar „gain-of-function“ erfðabreytingar.
Bandarísku samtökin EcoHealth Alliance, sem fengu alríkisstyrki svo þau gætu verið í samstarfi með stofnuninni, eru nú einnig komin undir smásjá yfirvalda í rannsókninni.
Bandaríska heilbrigðisráðuneytið hefur nú stöðvað öll framlög til EcoHealth og hafið rannsókn á störfum þeirra.
Samkvæmt skýrslunni veitti Dr. Peter Daszak, forseti EcoHealth, villandi upplýsingar til þingnefndar og hindraði aðgang að skjölum er vörðuðu rannsóknina.
Alvarlegar ásakanir á NIH og Dr. Fauci
Skýrslan gagnrýnir einnig bandarísku heilbrigðisstofnunina NIH fyrir slaka stjórnsýslu og skort á gegnsæi.
Þar er sérstaklega fjallað um Dr. David Morens, ráðgjafa Dr. Anthony Fauci, sem sakaður er um að eyða opinberum gögnum og afhenda EcoHealth trúnaðarupplýsingar.
Auk þess kemur fram að greinin The Proximal Origin of SARS-CoV-2, sem víða var notuð til að afneita rannsóknarstofukenningunni, hafi beint frá Dr. Fauci í því skyni að villa til um uppruna veirunnar.
Gagnrýni á WHO, bönn og grímuskyldu
Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO) fær einnig harða gagnrýni fyrir að hafa látið undan pólitískum þrýstingi frá kínverskum stjórnvöldum og fyrir að bregðast alþjóðlegri skyldu sinni.
Þá segir í skýrslunni að margar af aðgerðum Bandaríkjastjórnar, meðal annars 6 feta reglan og grímuskylda, hafi verið byggðar á veikum eða jafnvel engum vísindalegum grunni.
Alríkisstjórnin sökuð um ritskoðun og þöggun
Samkvæmt skýrslunni tóku yfirvöld þátt í skipulagðri upplýsingastýringu þar sem óhefðbundin meðferðarúrræði voru dæmd úr leik og gagnrýnisraddir þaggaðar niður.
Biden-stjórnin er sögð hafa beitt stærstu samfélagsmiðlafyrirtæki heims þrýstingi til að ritskoða alla gagnrýni tengda COVID-19 stefnu stjórnvalda í þeim efnum.
New York fylki sakað um yfirhylmingu
Að lokum vekur skýrslan athygli á mistökum fyrrverandi ríkisstjóra New York ríkis, Andrew Cuomo, sem fyrirskipaði hjúkrunarheimilum að taka við COVID-19 smituðum einstaklingum, aðgerð sem nefndin kallar „glæpsamlega vanrækslu“.
Nefndin fullyrðir að stjórnsýslan hafi reynt að hylma yfir afleiðingar þessarar ákvörðunar.