Íran gerði drónaárás á bandaríska sendiráðið í Riyadh – Bækistöð CIA skotmarkið

Íran gerði drónaárás á sendiráð Bandaríkjanna í Riyadh í Sádi Arabíu í nótt, samkvæmt upplýsingum frá bandarískum og sádi arabískum stjórnvöldum. Tveir drónar hæfðu sendiráðið og ollu nokkrum skemmdum, en enginn féll í árásinni að sögn yfirvalda.

Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að bækistöð CIA innan sendiráðsins hafi orðið fyrir skemmdum í árásinni. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu þar sem fram kemur að hluti þaks hafi hrunið.

Auglýsing

Harðnandi átök á svæðinu

Árásin kemur í kjölfar loftárása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran sem hófust um helgina.

Síðustu daga hafa átök breiðst hratt út um Miðausturlönd. Dróna- og eldflaugaárásir hafa beinst að bandarískum herstöðvum og sendiráðum á svæðinu, þar á meðal í Kúveit og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sex bandarískir hermenn hafa fallið frá upphafi hernaðaraðgerða og tugir særst.

Stjórnvöld ræða stuðning við kúrdíska hópa

Samkvæmt erlendum miðlum hafa háttsettir embættismenn í Hvíta húsinu átt í viðræðum við leiðtoga Kúrda í Írak um mögulegan hernaðarstuðning. Markmiðið sé að veikja stöðu íranskra stjórnvalda innanlands í kjölfar dauða æðsta leiðtoga landsins.

Greint hefur verið frá því að Mojtaba Khamenei, sonur Ayatollah Ali Khamenei, hafi verið útnefndur nýr æðsti leiðtogi Írans. Hann er sagður hafa sterk tengsl við Byltingarvörðinn og njóta stuðnings innan klerkastjórnar landsins, þrátt fyrir að hafa ekki gegnt opinberu embætti áður.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing