Í nýjum þætti Fullorðins með Kiddu Svarfdal stígur Íris Helga opinberlega fram og svarar alvarlegum ásökunum sem Garpur Ingason Elísabetarson hefur sett fram á samfélagsmiðlum og var fjallað um í frétt Nútímans þann 4. mars.
Garpur lýsir í færslu sinni rúmlega ári af „skelfilegu áreiti“ frá kvenkyns kennara sem hann sakar um að hafa skorið á dekk, dreift röngum upplýsingum, sent skilaboð til nánustu fjölskyldumeðlima hans og jafnvel reynt að hafa samskipti við dóttur hans.
Hann segir viðkomandi konu einnig hafa logið upp á nemendur í skóla þar sem hún starfar og að ítrekuð afskipti lögreglu hafi ekki borið árangur.
Í viðtalinu við Kiddu svarar Íris Helga fyrir þessar ásakanir.
Hafnar öllum ásökunum
Hún hafnar þeim algerlega og segist sjálf hafa orðið fyrir miklu hugarangri og aðkasti í kjölfar þeirra
„Ég ætla ekki að sitja undir þessu,“ segir Íris ákveðin. Hún hafnar því alfarið að hafa sagst vera stjúpmóðir barna Garps, eða að hafa haft samskipti við þau með óeðlilegum hætti, eins og fullyrt hefur verið. „Ég hef aldrei áreitt barn. Þetta eru ógeðslegar ásakanir.“
Hún segir sig hafa leitað formlegrar staðfestingar á hegðun sinni í starfi: „Ég bað bæði skólastjóra og deildarstjóra um staðfestingu. Ég hef alltaf fengið góð meðmæli. Það hefur aldrei verið sett út á mig í vinnunni.“
Segist ekki vera með neinar kærur á bakinu
Íris bætir við að hún sé ekki með neina kærur á sér og að það sé staðfest með gögnum.
„Ég er með hreint sakavottorð og enga kæru á mér,“ segir hún og nefnir að hún hafi safnað sönnunum vegna allra þeirra fullyrðinga sem settar hafa verið fram.
Segir samband fyrrverandi maka og meintra aðila skipta máli
Íris tengir hluta af árásunum við fyrri sambönd.
Hún segir B – mann sem hún tengir við málið – hafa verið í sambandi með fyrrverandi vinkonu hennar, og að þar hafi tengingar milli þeirra orðið henni dýrkeyptar.
„Ég þarf að sanna sakleysi mitt – og það er fáránlegt“
Hún lýsir vinahópi sem hún telur hafa brugðist sér: „Ég var með mjög óþægilegan vinahóp á þessum tíma. Ég kúplaði mig alveg út úr því.“
Hún segir að ein fyrrum vinkona sín sé „algjör naðra sem svífst einskis.“
Hún segist ekki hafa staðið sig vel í að standa með sjálfri sér.
„Ég er kannski ekki nógu dugleg að standa upp og segja nei. Ég fer oft bara til baka og tala ekki fyrir sjálfri mér,“ segir hún. „Kannski þarf ég að læra að velja betur fólkið í kringum mig.“
Missir vinnu eftir símtal – kærir sjálf til lögreglu
Einn hluti viðtalsins snýr að því að Íris segist hafa misst vinnuna í kjölfar ásakana.
Hún segir mann sem hún kallar „B“ hafa hringt í skólann þar sem hún starfaði og farið með ósannindi.
„Skólastjórinn ákvað bara að hlusta á ásakanir og lygar og sagði mér upp,“ segir hún.
Íris fór með málið til kennarasambandsins og segir að niðurstaðan hafi verið sú að uppsögnin hafi verið ólögmæt. Málið sé nú í vinnslu.
Íris segir einnig að B hafi sjálfur viðurkennt að hafa haft samband við skólann. „Það kom sér vel að hann viðurkenndi það skriflega, þá gátum við höfðað mál.“
Þá segir hún að hún hafi sjálf lagt fram kærur, meðal annars vegna heimilisofbeldis og áreitni: „Það eru kærur inni, þetta er ekki eins og þeir geti bara sagt að ég sé með einhverjar kærur á mér. Þetta er öfugt.“
„Ég þarf að sanna sakleysi mitt – og það er fáránlegt“.
Segist stöðugt þurfa að sýna fram á sakleysi sitt
Íris segir að hún upplifi sig nú í þeirri stöðu að þurfa stöðugt að sýna fram á sakleysi sitt, þrátt fyrir að engar formlegar ákærur hvíli á henni.
„Ég er með fullan vasa af kvittunum,“ segir hún kaldhæðin. „Ég þurfti að biðja um kvittun hjá geðlækni bara til að sanna að ég hafi farið. Af hverju þarf ég að gera þetta?“
Hún segir mannorð sitt hafa verið dregið niður opinberlega og að hún hafi orðið fyrir miklum skaða, bæði faglegum og persónulegum.
„Hann er að drepa mannorð mitt,“ segir hún um Garp. „Ég ætla ekki að láta bjóða mér það.“
Segist vilja fá réttlæti
Íris segist þó vera með traustan stuðning heima fyrir og trú á því að staðreyndirnar vinni með sér.
„Ég er með frábæran mann sem styður mig í öllu,“ segir hún og bætir við að málin séu nú í farvegi sem vonandi leiði til réttlætis.
Fyrir neðan er hægt að horfa á brotið úr þættinum Fullorðins á Brotkast.is en ef þú vilt horfa á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift hér.