Lucie Stefanikova, sem var valin íþróttakona ársins í Garðabæ árið 2025, hefur lýst yfir stuðningi við séra Jakob Rolland, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, eftir umræðu sem skapaðist í kjölfar þátttöku hans í hlaðvarpi.
Í færslu á Facebook segir hún mikilvægt að minna á að kenning kaþólsku kirkjunnar hafi verið sú sama í um tvö þúsund ár. Samkvæmt henni kennir kirkjan að kynlíf eigi einungis heima innan hjónabands milli karls og konu og að sambandið eigi að vera opið fyrir lífi og kærleika.
Segir kenninguna gilda um alla
Í færslunni bendir Stefanikova á að kenningin snúi ekki eingöngu að samkynhneigðum heldur gildi hún um alla. Hún segir að kirkjan telji allar kynferðislegar athafnir utan þessa ramma synd, hvort sem um sé að ræða gagnkynhneigð eða samkynhneigð sambönd.
Hún segir jafnframt að kirkjan kenni að allir menn séu syndarar og kallaðir til iðrunar og breytinga á lífi sínu.
„Það skiptir ekki máli hvort maður er samkynhneigður eða gagnkynhneigður, við erum öll syndarar og kölluð til sinnaskipta,“ skrifar hún.
Segir eigin reynslu hafa mótað afstöðu sína
Stefanikova segir eigin lífsreynslu hafa haft áhrif á hvernig hún skilur kenningu kirkjunnar. Hún segir að hún og eiginmaður hennar hafi lifað saman í tíu ár og eignast börn áður en þau gengu í hjónaband og því ekki getað tekið þátt í sakramentum kirkjunnar á þeim tíma.
„Ég þekki þetta af eigin raun. Þegar maðurinn minn og ég lifðum saman í 10 ár og eignuðumst börn án þess að vera gift gátum við ekki tekið þátt í sakramentum Kirkjunnar og sambræður og systur í Kristi sýndu oft sorg yfir stöðu okkar. Ekki af hatri heldur af kærleika. Það var sárt og skammarlegt fyrir mig að geta ekki verið í fullu samfélagi við Kirkjuna.“
Síðar hafi þau ákveðið að breyta lífi sínu í samræmi við kenningar kirkjunnar.
Samkvæmt henni lifðu þau um tíma í skírlífi áður en þau gengu í hjónaband í kirkjunni.
Segir kirkjuna taka á móti öllum
Í lok færslunnar segir Stefanikova að skilaboð séra Jakobs séu einföld, kirkjan taki á móti öllum en kalli jafnframt alla til iðrunar og lífsstíls í samræmi við kenningar Krists.
„Allir eiga heima í kirkjunni,“ skrifar hún og bætir við að kirkjan sé ekki fyrst og fremst fyrir fullkomið fólk heldur „sjúkrahús fyrir syndgara“.