Kallar eftir jafnrétti kynjanna fyrir einstæða foreldra – Einhleypir feður sjaldnast skráðir sem einstætt foreldri

Á Alþingi vakti Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, athygli á því að þrátt fyrir markmið jafnréttislaga um að tryggja jöfn tækifæri kynjanna, séu um 90% þeirra sem skráðir eru einstæðir foreldrar konur en aðeins 10% karlar.

Segir skráningarkerfið valda skekkju

Samkvæmt Nönnu er ástæðan ekki sú að konur séu svona oft einar um uppeldi barnanna heldur að lögheimilisforeldrið skráist sem einstætt foreldri.

Auglýsing

Hitt foreldrið, sem jafnvel annast barnið að jöfnu, sé skráð sem einhleypur einstaklingur en ekki einstætt foreldri.

„Þetta skekkir allar greiningar á stöðu einstæðra foreldra,“ sagði þingmaðurinn og benti á að gögn Reykjavíkurborgar sýni að einhleypir karlar á miðjum aldri séu í meirihluta þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð.

Telur marga feður falla utan kerfisins

Þingmaðurinn sagði margt benda til þess að stór hluti þessa hóps séu feður sem ekki séu formlega skráðir sem einstæðir foreldrar, þrátt fyrir að sjá um börn sín til jafns við mæður.

Þegar foreldrar slíta samvistum í góðri sátt og vilja jafna umgengni taki kerfi við þeim sem hefur fjárhagslegum hvata til að hafa lögheimili barnsins.

Lögheimilisforeldrið fái ýmis réttindi sem hitt foreldrið, oftast faðirinn, fái ekki þótt hann beri jafnan kostnað af daglegri umönnun.

Jafnari tekjur og breytt hlutverk kalli á breytingar

Þingmaðurinn benti á að þótt heimilt sé að skipta lögheimili geri fáir það, meðal annars vegna þess að feður vilja ekki „taka af mæðrum þau réttindi“ sem þeir telja þær hafa sögulega notið.

Með breyttum samfélagsháttum og jafnari tekjum kynjanna sé hins vegar tímabært að endurhugsa kerfið.

Karlar líklegri til að glíma við fjárhagsvanda

Greiningar sýni að einhleypir karlar séu líklegri en margir aðrir hópar til að glíma við fjárhagsvanda, þunglyndi og örorku.

Að mati þingmannsins benda tölur til að núverandi kerfi virki ekki sem skyldi og að nauðsynlegt sé að tryggja raunverulegt jafnræði foreldra og barna.

„Ekki síst með því að viðurkenna bæði einhleypa foreldra sem einstæða foreldra,“ sagði þingmaðurinn að lokum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing