Kínverskir uppljóstrarar á TikTok segja að dýrustu vörur heims kosti aðeins brot af þeirri upphæð í framleiðslu

Kínverskir verksmiðjustarfsmenn og eigendur eru að setja allt á annan endann með myndböndum sem sögð eru sýna raunverulegan framleiðslukostnað lúxusvöru og hann kemur mörgum í opna skjöldu.

Vörur sem kosta fáeina dollara seljast á hundruðir þúsunda

Myndbönd á TikTok og öðrum samfélagsmiðlum sýna kínverska verksmiðjueigendur, birgja og starfsfólk halda á lúxusvöru eins og Hermès Birkin töskum og Lululemon æfingafötum og fullyrða að framleiðslukostnaður sé lítill sem enginn.

Auglýsing

Þeir fullyrða að Birkin taska sem kostar allt að 5 milljónir íslenskra króna í verslun sé framleidd fyrir um 140 þúsund krónur. Lululemon leggings, sem kosta yfir 16.000 krónur í verslun, séu framleidd fyrir um 700 krónur.

Hefnd Kína vegna tolla?

Þessi bylgja uppljóstrana virðist ekki vera tilviljun.

Bandaríkin hafa nýverið hækkað tolla á kínverskar vörur og margir túlka þessar uppljóstranir sem einhvers konar svar.

Kínverskir notendur TikTok á netinu fullyrða að ef Bandaríkin herða viðskiptaskilmála, þá munu kínverskar verksmiðjur sýna neytendum hvaðan vörurnar koma í raun og veru og hvað kostar að framleiða þær.

Í einhverjum tilvikum eru sögur um að kínversk stjórnvöld hafi dregið til baka trúnaðarsamninga við verksmiðjur sem nú nýta tækifærið til að afhjúpa hvernig vestræn vörumerki hámarka gróða sinn.

Græðgin allsráðandi

Sumir uppljóstrararnir segjast tilbúnir að selja bandarískum neytendum beint og bjóða sömu vörur, þó án án merkis, á brot af því verði sem varan kostar með merki frameliðandans.

Þeir hvetja neytendur til að kaupa beint frá framleiðendum í gegnum WeChat, WhatsApp eða Taobao.
„Við búum til $500 vöru fyrir $30 – viltu kaupa beint frá okkur fyrir $50?“

Uppljóstranirnar vekja reiði

„Við höfum verið svikin,“ segja margir í athugasemdum.

Aðrir gera grín að því sem þeir kalla „hámark kapítalismans“, að selja ímynd á uppsprengdu verði og a gæðamunurinn sé enginn á lúxusvöru og því sem oft er sagt vera ódýrt drasl.

Samt sem áður benda sumir á að lúxusvörur muni áfram seljast þar sem fólk borgar enn fyrir ímynd og upplifun.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing