Klámdrottningin stöðvuð: Bonnie Blue handtekin – gæti rotnað í fangelsi – MYNDBAND

Handtekin í Bali eftir BangBus-hneyksli

Hin breska klámstjarna Bonnie Blue, sem heitir réttu nafni Tia Billinger, var handtekin í Bali eftir að indónesk yfirvöld sökuðu hana um að hafa framleitt og dreift klámefni í trássi við strangar siðferðis- og klámvarnarlög landsins.

Ef hún verður sakfelld gæti hún átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi og þungar sektir. Vegabréf hennar hefur verið haldlagt og hún er í höndum yfirvalda á meðan tekin er ákvörðun um framhald málsins.

Auglýsing

Lögreglan stöðvaði svokallaða BangBus-ferð hennar, lagði hald á tökugræjur, kynlífstæki, lyf, búninga merkt „School Bonnie Blue“ og farartæki sem notað var við upptökur.

„Hey boys…“ – skilaboðin sem kveiktu málið

Handtakan á rætur að rekja til skilaboða sem Bonnie Blue birti á samfélagsmiðlum þar sem hún auglýsti komu sína til Bali. Þar beindi hún orðum sínum sérstaklega að ungum karlmönnum sem væru „barely legal“ og vísaði beint til Schoolies.

Schoolies eru ástralskir útskriftarnemar, yfirleitt 17–18 ára, sem halda stórar útskriftarhátíðir bæði í Ástralíu og erlendis. Bali hefur í áraraðir verið einn vinsælasti áfangastaðurinn fyrir þessa hópa vegna ódýrs ferðakostnaðar og mikillar næturlífsmenningar.

Með skilaboðunum var Bonnie Blue því beinlínis að höfða til þessa hóps, sem vakti sérstaka athygli yfirvalda.

Af hverju Schoolies skipta máli í þessu máli

Að mati indóneskra yfirvalda og þeirra sem kvörtuðu yfir starfseminni gerir þetta málið mun alvarlegra en ella.

Í fyrsta lagi vegna þess að indónesk klámlög eru með þeim ströngustu í heimi og gera enga undantekningu þegar kemur að „rétt yfir lögaldri“ þátttakendum. Í öðru lagi vegna þess að yfirvöld töldu að auglýsingarnar gætu verið túlkaðar sem hvatning til opinberrar klámframleiðslu með ungum ferðamönnum í miklum partýaðstæðum.

Kvartanir bárust frá íbúum, atvinnulífi og erlendum aðilum sem töldu að Bali væri verið að nota sem svið fyrir gróft klámuppátæki tengt útskriftarmenningu ungs fólks.

Lögreglan skildi fyrst ekki umfangið

Samkvæmt einstaklingi sem sagðist hafa látið yfirvöld vita af málinu áttaði lögreglan sig ekki strax á eðli starfseminnar. Að hans sögn þurfti að útskýra í smáatriðum að um væri að ræða farartæki, fjölda þátttakenda og dreifingu efnis á netinu.

Eftir frekari upplýsingar sendu yfirvöld leynilögreglu inn í aðgerðina, sem leiddi til handtöku Bonnie Blue og allt að 17 karlkyns ferðamanna. Flestir þeirra voru síðar látnir lausir, en málið sjálft var talið brjóta gegn lögum landsins.

Klámiðnaðurinn snýr sér gegn henni

Viðbrögðin komu ekki aðeins frá yfirvöldum. Áhrifafólk innan klámiðnaðarins hefur gagnrýnt Bonnie Blue harkalega og sakað hana um að nota atvinnugreinina sem stöðuga auglýsingabrellu.

Hún hefur verið sökuð um að rugla saman sviðsettu efni og raunverulegri refsiverðri hegðun, og um að draga inn „teen“-ímynd sem skaði bæði aðra klámframleiðendur og iðnaðinn í heild.

Ekki fyrsta hneykslið – en alvarlegasta

Bonnie Blue hefur áður vakið heimsathygli með umdeildum uppátækjum, þar á meðal fullyrðingum um að hafa sofið hjá yfir þúsund körlum á örfáum klukkustundum. Hún var síðar bönnuð af OnlyFans og hefur ítrekað byggt frægð sína á því að ganga á mörk lögmætis.

Munurinn nú er sá að þessi mörk voru þverruð í landi þar sem refsingarnar eru ekkert djók.

Fangelsi eða brottvísun?

Lögfræðingar í Indónesíu segja að lögin heimili allt að 12–15 ára fangelsi fyrir framleiðslu og dreifingu klámefnis. Algengt er þó að útlendingar séu að lokum vísað úr landi, fremur en dæmdir til fangelsis.

Engin ákvörðun hefur þó verið tekin. Vegabréf hennar er haldlagt og málið í höndum bæði lögreglu og útlendingayfirvalda.

Það sem átti að verða enn eitt „viral stunt“ hefur breyst í alvarlegt réttarfarslegt uppnám — og Schoolies-skilaboðin eru lykilatriði í því af hverju yfirvöld gripu svona harkalega inn í. Hvar verður um klámstjörnuna verður tíminn einn að leiða í ljós. Ekki uppáhaldsstaða yfir jól og áramót, svo mikið er víst.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing