Kristján Einar Sigurbjörnsson, oft kallaður Kleini, hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu vegna rannsóknar lögreglu á meintu kynferðisbroti á hóteli í miðbæ Akureyrar aðfaranótt sunnudags.
Kristján Einar var einn þriggja manna sem handteknir voru í tengslum við rannsókn málsins. Tveimur þeirra hefur þegar verið sleppt úr haldi en rannsókn málsins stendur enn yfir hjá lögreglu á Norðurlandi eystra.
Í yfirlýsingu sem Kristján Einar sendi frá sér segir hann að hann hafni ásökununum alfarið.
„Ég er saklaus af þeim ásökunum sem komið hafa fram,“ segir í yfirlýsingunni.
Hann segist ekki ætla að tjá sig frekar á þessu stigi málsins.
„Ég mun ekki tjá mig frekar um málið á meðan málið er til rannsóknar hjá lögreglu,“ segir hann jafnframt.
Alvarlegar ásakanir til rannsóknar
Málið hefur vakið mikla athygli eftir að greint var frá því að rannsókn lögreglu snúist um meint sérlega gróft kynferðisbrot sem talið er hafa átt sér stað á hóteli í miðbæ Akureyrar.
Brotaþoli leitaði í kjölfarið aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Í umfjöllun fjölmiðla hefur jafnframt komið fram að myndband sem tengist atvikinu eigi að hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan hefur þó ekki viljað staðfesta þær upplýsingar opinberlega.