Kona á reiðhjóli bitin af brjáluðum hundi á Akureyri

Kona sem var að hjóla upp upp Dvergaholt á Akureyri varð fyrir því að laus og æstur hundur réðist á hana síðdegis í gær og glefsaði í fótlegg hennar.

Konan þurfti að leita á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri þar sem hún fékk stífkrampasprautu og gert að sárum hennar.

Auglýsing

Hún þakkar þykkri buxnaskálm fyrir að sárið varð ekki dýpra.

Akureyri.net sagði fyrst frá.

„Hræðilegt atvik“ – Andleg áhrif meiri en líkamleg

Konan sagði í samtali við Akureyri.net að atvikið hafi verið hræðilegt.

Hún kveðst hafa verið hrædd við hunda fyrir og sitji andlega áfallið dýpra í henni en sjálfir áverkarnir.

Hundurinn hafi hlaupið að henni og bitið í fótlegginn.

Eftir atvikið fékk hún aðstoð frá nágrönnum við að ná áttum, enda var henni verulega brugðið.

Starfsmenn MAST á staðnum þegar bitið átti sér stað

Nokkur vitni voru að árásinni, þar á meðal tveir starfsmenn Matvælastofnunar (MAST) sem voru við heimili hundsins vegna fyrri kvartana frá nágrönnum.

Lögregla var kölluð til, staðfesti útkallið en veitti ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.

Starfsmenn MAST tóku hundinn í sína vörslu, en ekki er vitað hvað gert verður við hann.

Óttast að hjóla aftur – Lausir hundar valda óöryggi

Konan segist oft hjóla í bænum og hafi áður verið smeyk við lausa hunda og nú óttist hún að hjóla þar áfram: „Ég er ekki viss um að ég þori að hjóla hérna núna,“ segir hún.

Mynd tekin af Akureyri.net
Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing