Kona að nafni Eva María hefur stigið fram og sagt frá martröð sem hún lifði af eftir að hafa verið rænt, pyntuð og brennd með logsuðutæki í Alicante á Spáni.
Frásögn hennar í spænsku sjónvarpi hefur vakið gífurlega reiði meðal almennings.
„Þeir bundu mig með plastböndum og byrjuðu að brenna mig með logsuðutæki“
Eva María lýsti því í viðtali sem tekið var við hana á sjúkrahúsi, hvernig hún hafi verið blekkt í partý í ókunnugu húsi af kunningjakonu.
„Ég kom þangað í fylgd vinar vinkonu minnar. Við fórum inn í húsið og ég fór á klósettið. Ég tók nokkra smóka af marijúana og byrjaði að svima,“ sagði hún.
„Þegar ég kom út var hún farin. Einn mannanna lamdi mig í andlitið og svo bundu þeir mig með plastböndum, lögðu mig á gólfið og byrjuðu að brenna mig með logsuðutæki. Daginn eftir hófust nauðganirnar,“ bætti hún við, greinilega í miklu uppnámi.
Gerendurnir eru frá Alsír
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum voru hinir grunuðu karlmenn frá Alsír og höfðu búið í Alicante um tíma.
Að minnsta kosti einn þeirra er á sakaskrá sakaskrá fyrir ofbeldi og mannrán.
Spænsk yfirvöld rannsaka nú hvort árásin hafi verið hefnd, hluti af skipulagðri glæpastarfsemi eða tilviljunarkennd.
Nær dauða en lífi þegar lögreglan kom
„Þetta stóð yfir í viku,“ sagði Eva María.
„Síðasta daginn lá ég á gólfinu og gat ekki hreyft mig því ég var með svo mikla krampa eftir pyntingarnar. Þeir ætluðu að henda mér út í eyðimörk og skilja mig eftir. En stúlka kom, sem hafði verið blekkt á sama hátt og ég. Ég sagði henni að flýja. Þegar lögreglan kom fann hún mig í krampakasti, nær dauða en lífi.“
Spánverjar krefjast réttlætis
Málið hefur vakið mikla reiði á Spáni og þúsundir manna hafa tjáð sig á samfélagsmiðlum þar sem þeir lýsa samstöðu með fórnarlambinu og krefjast harðra refsinga.
Lögreglan vinnur nú að því að tryggja öryggi Evu Maríu á meðan hún jafnar sig af áverkum og sálrænum afleiðingum pyntinganna.
In Alicante, Spain, three Algerians kidnapped, raped, burned and beaten up this woman for 7 days.
I am sick and tired of this type of news.
Send them back home. All of them.
— Ada Lluch (@ada_lluch) November 11, 2025