Eftir að ung íslensk kona steig fram og lýsti því hvernig hún varð fyrir ítrekaðri kynferðislegri áreitni af hálfu sjúkraliða á Landspítalanum, hefur málið tekið nýja stefnu.
Í upphaflegri frétt Nútímans sagði konan frá því hvernig sjúkraliði hefði áreitt hana bæði meðan hún lá inni á deild og eftir útskrift.
Þrátt fyrir að deildarstjóri viðkomandi deildar, Guðrún Yrsa, hafi neitað að tjá sig um málið, hafa hennar yfirmenn nú brugðist við í málinu.
Baðst innilega afsökunar
„Yfirmaðurinn hennar Guðrúnar Yrsu, deildarstjóra meltinga og nýrnadeildar, var að hringja í mig og biðja mig afsökunar á þessu öllu saman. Við ætlum að hittast og ræða þessa hluti. Enda sagði hún að manni á að líða eins og maður sé öruggur, hvað þá á spítala, og hún þakkaði mér svo mikið fyrir að koma þessu á framfæri,“ segir konan í samtali við Nútímann.
„Það sem mér finnst verst er að fólk virðist hafa vitað af þessu en ekkert var gert,“ bætti hún við.
Fleiri starfsmenn spítalans höfðu samband eftir birtingu fréttarinnar
Einnig höfðu fleiri starfsmenn Landspítalans samband við Nútímann eftir birtingu fréttarinnar og staðfest að þeir viti nákvæmlega hver sjúkraliðinn er sem um ræðir.
Þeir segjast kannast við hegðun hans og segja hana löngu orðin þekkt innan spítalans.
Þeir lýstu yfir áhyggjum af því að annar erlendur sjúkraliði á sömu deild, sem er sagður vera fagmaður fram í fingurgóma, gæti verið ranglega tengdur við málið, þar sem nafn hins ásakaða hefur ekki verið opinberað.
Það verður að teljast ljóst að fleiri en einn starfsmaður kannast við hegðun sjúkraliðans og virðast hafa gert það lengi.
Spurningin sem vaknar er: Hversu lengi vissu stjórnendur deildarinnar af hegðun mannsins, og gerðu ekkert?