Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar eiga að vera öryggisnet fyrir fólk í neyð en ekki leið til að halda uppi erlendum afbrotamönnum.
Hún vísar meðal annars til þess að Mohamad Kourani hafi fengið samtals 24,5 milljónir króna frá Reykjavíkurborg og Tryggingastofnun og að sakborningarnir þrír í Höfðatorgsmálinu hafi lítið sem ekkert verið á almennum vinnumarkaði hér á landi.
„Jæja, finnst ykkur að við eigum að halda áfram að borga undir erlenda glæpamenn með útsvarinu okkar? Ég er allavega ekki til í það,“ segir Kristín í myndbandi sem hún birti á Facebook.
Fékk 24,5 milljónir frá borginni og ríkinu
Mohamad Thor Jóhannesson, áður Mohamad Kourani, var nýlega vísað úr landi til Sýrlands og gert að sæta 30 ára endurkomubanni. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi árið 2024 fyrir tilraun til manndráps, ofbeldi gegn opinberum starfsmönnum og fleiri brot.
Morgunblaðið greindi frá því um helgina að Kourani hefði lengst af verið á framfærslustyrk hjá Reykjavíkurborg áður en hann fór á bætur frá Tryggingastofnun. Samtals hafi hann fengið um 24,5 milljónir króna frá borginni og ríkinu á átta árum.
Kristín tengir þá umfjöllun við nýlegar fréttir af sakborningunum þremur í Höfðatorgsmálinu. Mennirnir, tveir Palestínumenn og einn Sómali, eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps vegna alvarlegrar árásar í bílakjallara Höfðatorgs í mars.
Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins hafa þeir nær ekkert eða ekkert starfað á almennum vinnumarkaði þau ár sem þeir hafa dvalið hér og hafa að mestu verið á framfæri sveitarfélaga. Réttarhöld yfir mönnunum standa yfir og hafa þeir ekki verið dæmdir.
Tveir af hverjum þremur erlendir ríkisborgarar
Kristín vísar einnig til talna Reykjavíkurborgar frá febrúar. Þá fengu 1.173 einstaklingar fjárhagsaðstoð til framfærslu frá borginni. Af þeim voru 783 erlendir ríkisborgarar, eða 66,75 prósent. Íslenskir ríkisborgarar voru 390.
Þannig voru um tveir af hverjum þremur sem fengu fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg erlendir ríkisborgarar.
„Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar á að vera öryggisnet fyrir borgara í algjörri neyð. Ekki bara einhver hvati fyrir erlenda óprúttna aðila til að koma hingað og stunda glæpi,“ segir Kristín.
Hún segir málið ekki aðeins snúast um meðferð opinberra fjármuna heldur einnig öryggi almennings.
„Þarna er ekki bara illa farið með skattfé borgarbúa heldur öryggi þeirra líka. Ég veit ekki með ykkur en ég segi stopp. Ég vil að peningurinn minn fari í eitthvað annað.“