Kurteisi við gervigreind ekki endilega af hinu góða

Sam Altman, forstjóri OpenAI, hefur vakið athygli eftir að hann opinberaði að kurteis svör notenda á borð við „vinsamlegast“ og „takk fyrir“, séu ekki eingöngu af hinu góða.

Svör þessi hafa nefnilega í för með sér verulegan rafmagnskostnað fyrir fyrirtækið.

Auglýsing

Í svari við færslu notanda á X sagði Altman að þessi kurteisi kosti „tugi milljóna dollara“ í rafmagn.

Hann bætti þó við að þessu fé væri vel varið.

Gervigreindin mannlegri með kurteisi

Þrátt fyrir að ChatGPT sé ekki meðvitað um tilfinningar þá séu margir notendur sem koma fram við það eins og lifandi veru.

Þessi hegðun gerir notkun gervigreindar mannlegri ,en á sama tíma orkufrekari.

Hvert svar sem bætist við samtalið, jafnvel eitt „takk“, krefst vinnslu í öflugum netþjónum sem nota mikla orku og þarfnast kælingar.

Samfélagsmiðlar bregðast við með kaldhæðni og húmor

Viðbrögð á X létu ekki á sér standa

Einn notandi skrifaði: „Lítið verð að greiða til að vera öruggur þegar heimsendirinn kemur.“ Margir brugðust við með húmor og vangaveltum um hvort kurteisi gæti komið sér vel þegar gervigreindin tekur við.

Myndin fyrir neðan er dæmi um svar sem borist hefur.

Ein af gamansömum myndum notenda um kurteisi við gerfigreind

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing