Kynjafræðikennari kallar nýfædd börn „typpabörn“ og „píkubörn“

„Um leið og píkubarn fæðist, eða typpabarn, þá byrjum við að ýta þeim í sitt hvora áttina,“ sagði kynjafræðikennarinn Hanna Björg Vilhjálmsdóttir í viðtali í Rauða borðinu á Samstöðinni.

Hanna, sem var kynnt sem brautryðjandi kynjafræðikennslu í íslenskum framhaldsskólum, notaði orðin þegar hún ræddi hvernig börn væru mótuð með ólíkum hætti frá fæðingu eftir kyni.

Auglýsing

„Píkubarn“ og „typpabarn“

Hanna og Ásdís Ólsen, stjórnandi þáttarins, voru að ræða um hugtakið „kvensku“, sem Hanna lýsti sem sterkara orði en kvenleika og taldi standa nær hugtakinu mennsku.

Ásdís spurði hvort ákveðin eðlishyggja fælist í hugtakinu. Hanna hafnaði því og sagði samfélagið byrja að beina börnum í ólíkar áttir um leið og þau fæddust.

Hún sagði rannsóknir sýna að foreldrar töluðu og hegðuðu sér með ólíkum hætti gagnvart börnum eftir kyni. Feður töluðu jafnvel öðruvísi við ófædd börn eftir að þeir fengju að vita hvort von væri á stúlku eða dreng.

Kynjafræði skyldufag í Borgó

Hanna hóf að kenna kynjafræði við Borgarholtsskóla árið 2007. Að hennar sögn þurfa nú allir nemendur skólans að ljúka fimm einingum í faginu áður en þeir útskrifast.

Kynjafræði er ekki sérstaklega tilgreind sem námsgrein í aðalnámskrá framhaldsskóla, en Hanna vísaði til þess að jafnréttisfræðsla ætti samkvæmt lögum að fara fram á öllum skólastigum.

Í kennslunni er meðal annars fjallað um staðalmyndir, karlmennsku, klám, kynlíf, mörk, heilbrigð samskipti, ofbeldi, kyrkingar og hinseginmál. Hanna lýsti kynjafræðikennslunni sem beinni forvörn gegn ofbeldi.

Segir ekki alltaf þurfa rannsóknir

Ásdís spurði Hönnu hvort árangur kennslunnar hefði verið rannsakaður. Hanna sagðist ekki telja að slík rannsókn hefði verið gerð en bætti við:

„Stundum þarf ekki rannsókn til þess að vita að eitthvað sé satt.“

Hanna sagðist finna fyrir árangrinum í frásögnum nemenda. Hún nefndi meðal annars pilt sem hefði sagt að kennslan væri búin að eyðileggja klám fyrir sér. Þá hefðu stúlkur sagt henni að þær væru betur í stakk búnar til að þekkja og verja eigin mörk.

Segir stráka aftengda tilfinningum sínum

Stór hluti viðtalsins snerist um þá skoðun Hönnu að strákar væru frá unga aldri þjálfaðir í að bæla tilfinningar sínar.

Hún sagði reiði oft vera einu tilfinninguna sem þeir lærðu að tjá. Örvænting, sorg, ótti, gremja og höfnun gætu því safnast upp og brotist út í ofbeldi eða beinst gegn þeim sjálfum. Í verstu tilfellum gæti slík vanlíðan leitt unga menn út í sjálfsvíg.

Hanna lýsti ofbeldi gegn konum sem faraldri sem væri ekki í rénun. Hún lagði þó áherslu á að ekki ætti að gera gerendur að skrímslum, heldur draga þá til ábyrgðar og hjálpa þeim að takast á við vandamál sín.

Þegar Ásdís spurði hvort innflutt menning ætti þátt í ofbeldi gegn konum sagðist Hanna ekki telja það eiga við nema að litlu leyti. Hún sagði gerendur kynferðisofbeldis fyrst og fremst vera íslenska karla og varaði við því að samfélaginu yrði skipt í „okkur“ og „hina“.

Undir lok viðtalsins sagði Hanna kynjafræðina gera „allt fyrir nemendur og ekkert gegn þeim“. Hún vill að kynjafræði og vinna með tilfinningar verði fyrirferðarmeiri á öllum skólastigum, allt frá leikskólum til framhaldsskóla.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing