Orðið kynskiptingur kom fyrir hjá þjóðþekktum manni. Tiltölulega ungum manni. Mörgum brá í brún þegar hann notaði orðið. Sumum fannst orðanotkunin í lagi og öðrum ekki. Eins og gengur og gerist.
Hér áður fyrr
Í ,,gamla daga“ var þetta orð notað yfir fólk sem taldi sig hafa skipt um kyn vegna læknisfræðilegra inngripa. Ekki verður farið frekar út í þær limlestingar.
Eftir læknisfræðilegt inngrip átti karlmaður að geta breyst í kvenmann og öfugt. Sárafá tilfelli hér áður fyrr og mönnum þótti þetta ekkert tiltökumál. Og, kallaðir kynskiptingar.
Vert er að minnast á tilraunina með drengina, tvíburana, annar þeirra var alinn upp sem stúlka, því tilraunamaðurinn, sálfræðingurinn John Money, vildi sjá hvernig tækist að gera hann hinsegin.
Drengurinn var viðfangsefni sálfræðingsins og kornungt barnið sett í ferli ,,kynleiðréttingar.“
Drengirnir, David og Brian, sem fæddust 1965 tóku báðir eigið líf, annar 2002 og hinn 2004. Heimildir herma að hvorugur hafi átt gott líf. Síðar, þegar upp komst, varð þessi tilraun mikið hneykslismál.
Sá sem var alinn upp sem stúlka sætti sig aldrei við það og fór í fætt kyn sem unglingur. Meðfæddir kynlitningar ljúga ekki.
Vitum meira nú en áður
Höldum okkur við efnið.
Í dag vitum við meira en áður. Við vitum að það er ekki hægt að skipta um líffræðilegt kyn og því á orðið kynskiptingur sennilega aldrei við.
Orðið segir í bókstaflegri merkingu, að skipta um kyn. Ekki hægt. Hins vegar er hægt að gera það í huganum.
Viðkomandi upplifir að hann sé hitt kynið, annað en hann fæddist. Og munum, engum er úthlutað kyni. Að sjálfsögðu eru það ósannindi. Í sónar og við fæðingu barns sést hvort um svein- eða meybarn er að ræða.
Ræði ekki brenglun á litningum sem getur komið upp í sára, sárafáum tilfellum.
Orðið kynskiptingur byggir trúlega á miklum misskilningi um að menn geti skipt um kyn og bíður þess sennilega að fara út úr tungumálinu.
Í dag velja menn sem finnst þeir vera hitt kynið að kalla sig trans. Það gera líka þeir sem upplifa sig öðruvísi í samanburði við það fólk sem viðkomandi miðar sig við.
Nýyrði, um fólk sem upplifir sig hitt kynið, hefur komið fram í umræðunni, kyngervill.