Í Bretlandi var leikskólabarni, það þýðir á aldrinum þriggja eða fjögurra ára, verið vísað úr leikskóla eftir að hafa verið sakað um transfóbíu, samkvæmt nýjum gögnum frá breska menntamálaráðuneytinu.
The Telegraph, ásamt öðrum miðlum segir frá.
Atvikið átti sér stað á ríkisreknum skóla á skólaárinu 2022–2023.
„Mismunum gegn kynhnegið eða kynvitund“
Barninu var vísað tímabundið úr skólanum vegna „mismununar gegn kynhneigð og kynvitund annars einstaklings“, samkvæmt því er fram kemur í umfjöllun The Telegraph.
Í sömu skýrslu kemur fram að 94 börn í sambærilegum grunnskólum hafi verið vísað tímabundið eða varanlega úr skóla vegna transfóbískrar eða homófóbískrar hegðunar á sama skólaári.
Þar af voru tíu í fyrsta bekk og þrjú í öðrum bekk. Eitt barn, það sem hér um ræðir, var á leikskólaaldri.
Segir málið vera fáránlegra en nokkur lygi
Helen Joyce, baráttukona fyrir málfrelsi hjá samtökunum Sex Matters, sagði: „Stundum birtast sögur úr öfgum kynjastefnu sem virðast of fáránlegar til að vera sannar og þetta er ein af þeim. Að refsa leikskólabarni fyrir meintar transfóbískar hugsanir er fjarstæðukennt. Kennarar og stjórnendur ættu að skammast sín fyrir að varpa hugmyndafræði fullorðinna yfir á smábörn.“
Lord Young, framkvæmdastjóri Free Speech Union, sagði: „Ef hugmyndafræðin þín réttlætir refsingu leikskólabarna fyrir að uppfylla ekki viðmið hennar, ætti það eitt að sýna að hugmyndafræðin sé orðin of stíf og hættuleg.“
Menntamálaráðuneytið í Bretlandi sagði í yfirlýsingu: „Öll börn og starfsmenn eiga að vera örugg í skólaumhverfi. Við höfum sett af stað umfangsmikið átak til að styðja við góða hegðun í skólum og tryggja að öll börn fái tækifæri til að blómstra.“
Sex ára dreng vísað úr skóla fyrir transfóbíu
Árið 2022 komst annar svipaður atburður í fréttir þegar foreldrar sex ára drengs á skóla í eigu ensku þjóðkirkjunnar á Isle of Wight voru varaðir við því að sonur þeirra gæti verið talinn transfóbískur ef hann setti spurningar við barn í kjól.
Foreldrarnir, Nigel og Sally Rowe, mótmæltu harðlega.
Umræðan um transfóbíu innan breska skólakerfisins náði hámarki árið 2021 þegar prófessorinn Kathleen Stock var neydd til að segja upp störfum við háskólann í Sussex eftir gagnrýni á kenningar um kynvitund.
Í síðustu viku fékk háskólinn í Sussex 585.000 punda sekt fyrir að hafa ekki tryggt málfrelsi innan stofnunarinnar sem er hæsta sekt af þessum toga sem breskur háskóli hefur fengið.
Af gefnu tilefni skal tekið sérstaklega fram að ekki er um aprílgabb að ræða.