Lektor við Háskóla Íslands spyr: „Er Mohamad Kourani ekki manneskja?“

Ingólfur Gíslason, lektor við Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega umræðuna sem skapast hefur í kjölfar þess að Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Mohamad Kourani, var vísað úr landi.

Í færslu á Facebook spyr Ingólfur: „Er Mohamed Kourani ekki manneskja?“ Hann segir fjölmargar færslur og athugasemdir um málið bera vitni um „ótrúlega heift, refsigleði og afmennskun“.

Auglýsing

Kourani var fylgt til Sýrlands eftir að honum var veitt reynslulausn þegar hann hafði afplánað þriðjung átta ára fangelsisdóms. Hann var meðal annars dæmdur fyrir tilraun til manndráps og stórfellda líkamsárás eftir að hafa stungið tvo menn í versluninni OK Market.

Hann sætir nú 30 ára banni við endurkomu til Íslands og annarra ríkja á Schengen-svæðinu. Brottvísunin byggðist á bráðabirgðaákvæði í lögum sem heimilar reynslulausn erlendra fanga eftir að þriðjungur refsingar hefur verið afplánaður, þegar þeim er jafnframt vísað úr landi. Vísir greindi frá brottvísuninni.

Segir hann kallaðan „skepnu“

Ingólfur segir Kourani hafa verið kallaðan skepnu og öðrum orðum sem gefi til kynna að hann sé ekki talinn manneskja.

„Ef eitthvað má marka fréttir og opinber skjöl þá á Kourani við mikla tiltekna geðræna erfiðleika að stríða og er stjórnlaus og hættulegur,“ skrifar Ingólfur.

Hann telur jafnframt að Kourani hafi ekki fengið viðeigandi úrræði vegna geðrænna erfiðleika sinna. Það er mat Ingólfs, en Kourani var metinn sakhæfur við meðferð sakamálsins og dæmdur til fangelsisvistar.

Kourani sótti síðar um náðun af heilbrigðisástæðum. Lögmaður hans hafði þá farið fram á að hann yrði fluttur úr fangelsi og komið undir læknishendur. Vísir fjallaði um náðunarbeiðnina.

Gagnrýnir umfjöllun um greiðslur

Ingólfur gagnrýnir einnig fréttaflutning Morgunblaðsins af félagslegum greiðslum sem Kourani fékk hér á landi. Hann segir tölurnar hafa verið settar fram með þeim hætti að lesendum ætti að blöskra upphæðirnar.

Að mati Ingólfs voru greiðslurnar hins vegar lágar og dugðu ekki til annars en að halda Kourani á lífi.

Hann hafnar því jafnframt að saga Kourani gefi tilefni til alhæfinga um flóttafólk frá Vestur-Asíu og Afríku.

Óttast afdrif hans í Sýrlandi

Ingólfur segist ekki hafa forsendur til að fullyrða hvað réttast hefði verið að gera í málinu og tekur fram að hugsanlega hafi Kourani sjálfur viljað yfirgefa landið.

Hann óttast þó að Kourani fái litla eða enga aðstoð í Sýrlandi og geti bæði valdið öðrum skaða og sjálfur orðið fyrir alvarlegum afleiðingum.

„Mér finnst þessi orðræða um hann og orðræða um flóttafólk út frá hans máli vera til marks um harðneskju, ef ekki hatur, sem er ógnvænlegt,“ skrifar Ingólfur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing