„Lög Irynu“ samþykkt í Norður Karólínu eftir morðið á flóttakonu – Allir svartir fulltrúar kusu gegn því

Löggjafarþing Norður-Karólínu í Bandaríkjunum samþykkti á þriðjudag umdeilda löggjöf í kjölfar morðsins á úkraínsku flóttakonunni Irynu Zarutska, sem var stungin til bana í lest í Charlotte í ágúst síðastliðnum.

Frumvarpið, sem kallast „Lög Irynu“, felur í sér strangari reglur um lausn grunaðra án tryggingar, aukið geðheilbrigðismat og ákvæði sem gætu endurvakið dauðarefsingar, í fyrsta sinn frá árinu 2006.

Auglýsing

Atkvæðagreiðslan klofnaði eftir kynþætti

Í atkvæðagreiðslunni í fulltrúadeildinni kusu allir hvítir Repúblikanar með frumvarpinu.

Allir svartir þingmenn, óháð flokkssk´raningu, kusu gegn því.

Hins vegar studdu margir hvítir Demókratar frumvarpið, sem varð til þess að það var samþykkt með 81 atkvæði gegn 31.

Svartir þingmenn sögðu frumvarpið endurspegla þekkingarleysi á raunverulegum orsökum ofbeldis og gagnrýndu harðlega ný ákvæði sem myndu heimila aftökur með skotvopnum eða rafmagnsstól á ný.

Lögð áhersla á refsingu en ekki úrræði

Frumvarpið afnemur lausn án tryggingar fyrir margvísleg brot og takmarkar svigrúm dómara og lögreglufulltrúa til að sleppa fólki úr haldi án tryggingar.

Jafnframt eru sett skýrari skilyrði um hvenær sakborningar skuli gangast undir mat á geðmat.

Þingmenn Repúblikana sögðu með þessu væri verið að bregðast við „kerfisbundnum mistökum“ og tryggja öryggi almennings.

En andstæðingar bentu á að frumvarpið bætti ekki við fjármagni til geðheilbrigðisþjónustu eða lögreglu, og væri meira „pólitískt yfirvarp“ en lausn.

Ákvæði um aftökur valda deilum

Sérstök athygli beinist að viðauka sem kveður á um að aftökur megi framkvæma með öðrum aðferðum en lyfjagjöf ef hún reynist ólögmæt eða óframkvæmanleg.

Slíkar aðferðir gætu verið aftökusveit eða rafmagnsstóllinn, aðferðir sem gagnrýnendur kalla fornaldarlegar og grimmilegar.

„Þetta er ekki löggjöf um öryggi. Þetta er refsigleði sem bitnar mest á svörtum og fátækum,“ sagði Vernetta Alston, svört þingkona Demókrata og fyrrum verjandi fanga á dauðadeild.

Pólitískar afleiðingar

Ríkisstjórinn, Demókratinn Josh Stein, hefur ekki gefið upp hvort hann muni undirrita frumvarpið eða beita neitunarvaldi.

Hins vegar eru stuðningsmenn frumvarpsins nógu margir til að mögulegt neitunarvald muni ekki duga til, sem myndi tryggja að „Lög Irynu“ taki gildi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing