Lögmaðurinn sem sat í einangrun í þrjár vikur auglýsti „ókeypis“ aðstoð – fékk tæpar tíu milljónir frá Útlendingastofnun á 15 mánuðum

Lögmaðurinn Gunnar Gíslason, 39 ára, sem var handtekinn af lögreglunni á Norðurlandi eystra þann 18. nóvember og sat í einangrun í um þrjár vikur, neitar alfarið tengslum við skipulagða glæpastarfsemi.

Gunnar var yfirheyrður vegna gruns um aðkomu að ólöglegum flutningi fólks til landsins, peningaþvætti, fíkniefnasölu og tengslum við umfangsmikla kannabisræktun í hinu svokallaða Raufarhafnarmáli.

Auglýsing

Gunnar segir ásakanirnar fjarstæðukenndar og að lögreglan hafi beint sjónum sínum að honum vegna þess að hann sé „rosalega vinsæll á meðal Albananna“ og með fjölda viðskiptavina þaðan.

Hann telur markmið lögreglu hafa verið að komast í vinnugögn hans og kortleggja tengsl skjólstæðinga hans við rannsóknina.

Hann segir aðgerðir lögreglu ólögmætar og að þær hafi gengið of langt og vísar þar meðal annars í húsleit á heimili hans, frystingu allra bankareikninga, hleranir og eftirfylgd.

Hann hyggst nú stefna hinu opinbera og krefjast miskabóta, bæði fyrir sig og fjölskyldu sína.

Auglýsti lögfræðiþjónustu sem „ókeypis“

Á sama tíma og rannsókn lögreglu stendur yfir hefur vakið athygli að Gunnar hefur markvisst auglýst þjónustu sína á samfélagsmiðlum, sem hann segir beint að albönskum ferðamönnum og farandfólki sem lendir í eftirliti á Keflavíkurflugvelli.

Í auglýsingu frá Lögmannsstofunni Jura segir meðal annars:

“If the police have stopped you from entering, you are entitled to an attorney and may be entitled to compensation. And guess what? It is free of charge!“

Auglýsingin er, að sögn Gunnars, beint að albönskum ferðamönnum og farandfólki sem lendir í eftirliti á Keflavíkurflugvelli.

Því er haldið fram að þjónustan sé ókeypis.

Samkvæmt lögum um útlendinga og reglugerðum um meðferð mála á landamærum er ríkinu skylt að útvega einstaklingum, sem synjað er um komu til landsins eða hyggjast kæra frávísun, lögmann á kostnað ríkissjóðs.

Því er þjónustan sem lögmaðurinn auglýsir að sé ókeypis greidd af hinu opinbera.

Tæpar 10 milljónir í greiðslur frá Útlendingastofnun á 15 mánuðum

Samkvæmt opnum gögnum Útlendingastofnunar hefur lögmannsstofa Gunnars, Jura slf., fengið greiddar alls 9.636.660 krónur frá stofnuninni á tímabilinu júní 2024 til september 2025.

Þar af eru 7.639.500 krónur í lögfræðikostnað og 1.865.160 krónur í virðisaukaskatt.

Það gerir 642 þúsund krónur á mánuði með vsk.

Tölurnar sýna að Gunnar hefur fengið greitt fyrir á annan tug verkefna, allt frá 165 þúsund krónum í einstökum málum og upp í rúmlega 400 þúsund fyrir stærri málsmeðferðir.

Reglugerðin kveður sérstaklega á um að greiðslur til lögmanna séu fastar fjárhæðir, sem skýrir af hverju greiðslur Jura slf. eru sambærilegar milli mála.

Sú þjónusta sem Gunnar markaðssetur sem „free of charge“ er í raun fjármögnuð af hinu opinbera og hefur skilað honum tæpum tíu milljónum króna á 15 mánaða tímabili.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing